Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þér hættir til að velta þér óþarflega mikið upp úr lítilfjörlegum vandamálum og hafa af þeim meiri áhyggjur en vert er. Gerðu þér glaðan dag.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Ímyndunarafl þitt er frjótt í dag og þú ættir að nýta þér það sem best. Þú þarft að treysta á sjálfan þig því samvinna gengur ekki vel.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki vera of viss um að þú hafir á réttu að standa í ágreiningsmáli. Þú værir maður að meiri ef þú viðurkenndir ósigur þinn strax og þú uppgötvar hann.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þetta verður góður dagur á vettvangi félagsmála. Þeir sem hafa gengið í gegnum erfiðleika í ástarlífinu fara nú að sjá bjartari tíð á því sviði.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ert að velta einhverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Reyndu að hvíla þig.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Einhver þér nákominn verður fyrir vonbrigðum í dag. Gættu að orðum þínum og varastu alla svartsýni. Það gæti gert illt verra.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Vinátta og fjármál gætu valdið þér hugarangri í dag og þú skalt fara einstaklega varlega í viðskiptum. Reyndu að forðast að lenda í illdeilum við vini þína.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú færð kjörið tækifæri til að sýna væntumþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð þá hjálp sem þú þarfnast.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þér er alveg óhætt að láta í ljós áhuga á því sem þú hefur raunverulega áhuga á. Vinur þinn mun standa með þér í ágreiningsmáli.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki trúa sögusögnum sem þér berast til eyrna. Það er ólíklegt að allt sé satt sem þar kemur fram. Hlustaðu á vin þinn sem á í vanda.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þakkaðu fyrir hlé sem verða fyrri hluta dags. Þá gefst þér tækifæri til að sinna hugðarefnum þínum. Þú getur líka lokið ýmsu sem hefur setið á hakanum.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Vinir þínir skipuleggja helgarferð og mikil samstaða ríkir meðal hópsins. Félagslífið tekur mikið af tíma þínum en þeim tíma er vel varið.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú ættir að koma þér beint að efninu af þú þarft að hafa samband við fólk í stað þess að vera með málalengingar. Það virkar ekki vel á þá sem þú átt samskipti við.

Menning