Innlent

Færa hús í heilu lagi frá Hverfisgötu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Húsið stendur við Hverfisgötu 58a.
Húsið stendur við Hverfisgötu 58a. vísir/valli
Unnið hefur verið að því í kvöld að flytja hús í heilu lagi af Hverfisgötu 58a. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er um vandasamt verk að ræða enda húsið nokkuð stórt. Duga því engin vettlingatök.

Kranabíll mun hífa húsið upp á flutningabíl sem mun aka með húsið á nýjan áfangastað úti á Granda. Hverfisgötunni hefur verið lokað að hluta vegna aðgerðarinnar en fjöldi verkamanna kemur að flutningunum.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, kom við á Hverfisgötunni og tók þessar myndir af aðgerðunum.

vísir/valli
Vísir/valli
Vísir/valli
Vísir/valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×