Innlent

Fært á hjólastól yfir Markarfljót

Göngubrú úr Fljótshlíð í Þórsmörk á að auka öryggi.
Göngubrú úr Fljótshlíð í Þórsmörk á að auka öryggi.
Áhugahópurinn Vinir Þórsmerkur hefur fengið heimild í skipulagsnefnd Rangárþings til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna byggingar göngubrúar yfir Markarfljót á móts við Húsadal í Þórsmörk.

Göngubrúin á að nýtast í neyð fyrir sjúkrabíla og létt ökutæki eins og fjórhjól og sexhjól. Hún á einnig að verða fær fólki á hjólastólum með aðstoð. „Enn fremur geti brúin nýst í neyðartilvikum við til dæmis rýmingu á Þórsmörk, vegna náttúruvár. Brúin yrði um 140 metra löng og myndi tengja Þórsmörk við Fljótshlíðina,“ segir skipulagsnefndin. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×