Lífið

Fjórða barnið á leiðinni

myndir/cover media
Tori Spelling og eiginmaður hennar, Dean McDermott, eiga von á fjórða barninu í lok ársins. Fyrrum 90210 stjarnan bloggaði eftirfarandi á föstudaginn síðasta aðeins fimm mánuðum eftir að þriðja barnið, Hattie, fæddist.

„Við erum í skýjunum yfir því að annað lítið McDermott-barn er á leiðinni! Við erum innilega ánægð með að annar engill hefur fundið okkkur,“ skrifaði Tori.

Hún og Dean giftu sig árið 2006 en saman eiga þau Liam, 5, Stellu, 3, og fimm mánaða gamla Hattie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.