Fjórir milljarðar afskrifaðir hjá Brimborg

Vísir Viðskipti innlent 02. nóvember 2011 18:30
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
Þorbjörn Þórðarson skrifar:
Bílaumboðið Brimborg fékk tæpa fjóra milljarða króna afskrifaða á síðasta ári án þess að gengið væri á hlutafé. Þar af var ríkisbankinn Landsbankinn með sjö hundruð milljónir. Samningar við birgja voru við núverandi hluthafa og því hefðu bankarnir séð fram á að missa umboð tækju þeir fyrirtækið yfir.

Upplýsingar um skuldaniðurfellinguna koma fram í ársreikningi Brimborgar fyrir árið 2010, en fjárhæðin nemur 3,9 milljörðum króna. Skuldirnar sem afskrifaðar voru hjá nema 58 prósentum af heildarskuldum fyrirtækisins, en forstjóri Brimborgar segir að þetta hlutfall sé lægra en hlutfall skuldaniðurfellingar hjá þeim fyrirtækjum sem hafa farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu.

„Við erum að semja við sjö kröfuhafa sem telja þetta bestu leiðina. Samhliða þessu er 200 milljóna króna eigið fé frá eigendum, sem eru í raun með alla samninga við erlenda birgja sem eru tólf talsins," segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. Hann segir að í samningum við kröfuhafa fyrirtækisins, sem eru ýmist bankar og eignaleigufyrirtæki, sé gert ráð fyrir að ef vel gangi í rekstri Brimborgar muni þetta hlutfall lækka. „Og ég yrði ekkert hissa ef við myndum enda í kringum fimmtíu prósent," segir Egill.

Egill vísar einnig í skýrslu eftirlitsnefndar um endurskipulagningu fyrirtækja, en þar hafi komið fram að meðalafskrift niðurfellinga hafi numið 73 prósentum, eða 15 prósentum hærra en hjá Brimborg.

En þegar fjórir milljarðar króna eru afskrifaðir án þess að kröfuhafar gangi á hlutafé, þýðir það ekki á mannamáli að það sé verið að gefa peninga? „Nei."

Hvernig rökstyðurðu það, ef það kemur engin eign á móti til kröfuhafa. Það er bara afskrifað? „Það kemur eigið fé (frá eigendum Brimborgar innsk.blm) upp á 200 milljónir. Það er líka búið að staðfesta að lánin eru ekki eins mikils virði og þau voru í upphafi. Það er búið að afskrifa þau. Fyrir kröfuhafana er þetta einmitt besta leiðin í þessu tilviki því meiri líkur en minni eru á að það sem eftir situr verði borgað."

Samningar Brimborgar við birgja, eins og Volvo, Ford og fleiri, voru þess eðlis að það var bönkunum óhagstætt að taka fyrirtækið yfir. „Samningarnir byggja á þáverandi hluthöfum og lykilstjórnendum," segir Egill.

Þannig að bankarnir hefðu þá setið uppi með vörubirgðir en enga samninga við birgja hefðu þeir tekið fyrirtækið yfir? „Já, til dæmis."

Á mannamáli þýðir þetta að eigendur Brimborgar hefðu getað gengið út og stofnað nýtt fyrirtæki, með sömu birgjum, hefðu kröfuhafar tekið Brimborg yfir. Um svipað fyrirkomulag er að ræða og er við lýði hjá öðrum bílaumboðum, eins og Heklu og Toyota.

Egill segist nýlega hafa endurnýjað samninga við tvo birgja og þar sé enn skýrar tekið fram að samningarnir séu við núverandi hluthafa Brimborgar og lykilstjórnendur. thorbjorn@stod2.is

Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viðskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert o...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rann...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðski...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síða...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 15:11

Ergo lögmenn verða Íslenska lögfræðistofan

Lögmannsstofan Ergo lögmenn, Turninum Smáratorgi, hefur skipt um nafn og heitir nú Íslensk...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 10:55

Verðmætið jókst um 7,8 prósent

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 256 milljörðum króna á síðasta ári ...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 17:44

Afar óskynsamlegt að ráðast í framkvæmdir meðan ríkissjóður er jafn skuldsettur

Seðlabankinn varar við því að ráðist sé í opinberar framkvæmdir á meðan íslenska ríkið sku...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 13:23

Arnarlax fékk rekstrarleyfi fyrir 200 tonna eldi

Arnarlax fékk í gær rekstrarleyfi frá Fiskistofu fyrir 200 tonna eldi á tveimur stöðum í A...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 14:06

Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum

Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að ver...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 22:31

Már Guðmundsson seðlabankastjóri í Klinkinu

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri er gesturinn í nýjasta þættinum af Klinkinu, spjallþætti...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 19:30

Verðbólga étur upp launahækkanir í kjarasamningum

Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir að launahækkanir í kjarasamningum, sem samið var um í ...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 18:30

Seðlabanki tekst á við verðbólur - stýrivextir hækkaðir

Stýrivextirnir eru komnir upp í 5,5 prósent en Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 16:38

Greining Arion: Frekari vaxtahækkanir í pípunum

„Seðlabanki Íslands hækkaði vexti um 50 punkta í dag. Hinir virku vextir Seðlabanka...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 12:34

Deloitte harmar "aðför“ sjávarútvegsráðherra að fyrirtækinu

Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem Sjávarútvegsráðuneytið s...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 11:30

Sigurður Einarsson þarf að greiða Kaupþingi 500 milljónir

Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Sigurður Einarsson fyrrverandi...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 11:00

Eignir jukust um 462 milljónir

Hækkun á heimsmarkaðsverði á áli varð til þess að eignir HS Orku jukust um 462 milljónir k...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 08:59

Stýrivextir hækka um 0,5 prósentustig - Vextirnir komnir í 5,5 prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 06:00

Hafa þegar tryggt sér 1,45 prósenta hlut

Starfsmenn Landsbankans hafa þegar tryggt sér 1,45 prósenta hlut í bankanum. Virði þess hl...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 14:38

Atvinnuleysi verði 4,6 prósent árið 2014

Endurskoðuð spá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um rétt 2% á ári...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 13:23

Samdráttur í verslun í apríl

Tölvuverður samdráttur varð í flestum tegundum verslunar í apríl síðastliðnum miðað við sa...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 12:27

Efasemdir um að Landsvirkjun nái hærra orkuverði

Lækkun raforkuverðs til stóriðju í Bandaríkjunum gæti skert möguleika Landsvirkjunar til o...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 18:38

Sérstakur tók skýrslu af Gertner í Lundúnum vegna rannsóknar

Rannsókn sérstaks saksóknara á lánveitingum Kaupþings til hinna auðugu Gertner bræðra í Br...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 11:27

365 semur við Advania um hýsingu og netbúnað

Fjölmiðlasamsteypan 365 hefur samið við Advania um hýsingu og netbúnað fyrir upplýsingaker...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 09:30

Rauðka fjárfestir fyrir 1.200 milljónir á Sigló

Félagið Rauðka ehf., sem er í eigu Róberts Guðfinnssonar athafnamanns, hefur gert víðtækt ...  

Meira
Viðskipti innlent 15. maí. 2012 09:00

Kauphöllina grunar markaðsmisnotkun

Íslenska kauphöllin vísaði einu máli til frekari rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Hinn ómissandi óþarfi

Hinn ómissandi óþarfi

Guðmundur Andri Thorsson
Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....

Skoðun

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Steinunn Stefánsdóttir
Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga veturinn 2008 til...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Fjórir milljarðar afskrifaðir hjá Brimborg