Flækt fast við dautt hreindýr Erla Hlynsdóttir skrifar 31. október 2011 22:00
Tvö hreindýr til viðbótar fundust dauð á Suðausturlandi um helgina eftir að hafa flækt sig í girðingarvír. Aflífa þurfti eitt dýr til viðbótar, en það hafði verið fast á hornunum við dautt dýr í nokkra daga. Sex manna hópur, skipaður fulltrúum Samtaka lífrænna neytenda, ásamt fulltrúum Náttúruverndarsamtaka Austurlands, fór í leiðangur á Flatey á Mýrum á laugardag til að ræða við bændur og hreinsa upp flæktan girðingavír. Í leiðangrinum fundust tvö dauð hreindýr, til viðbótar við þau tvö sem drepist hafa á svæðinu á síðustu vikum. Í gær þurfti síðan að aflífa eitt vegna þess hversu máttfarið það var. Það hreindýr hafði í einhvern tíma verið fast við dautt hreindýr á hornunum, en dýraeftirlitsmaður losaði þau í sundur fyrir nokkrum dögum. Alls eru því fimm dýr á svæðinu dauð vegna frágangs á girðingum. Myndir sem teknar voru af dýrunum sjást í meðfylgjandi myndskeiði. Þar má meðal annars sjá dýr sem hafa flækt sig og kafnað í appelsínugulum nælonþræði sem er vafinn um girðingavír sem hægt er setja á rafstraum. „Við fórum austur vegna þess að okkur fannst mjög mikilvægt að fá bændurna til að setjast niður með okkur og skýra frá sínum málstað," segir Rósa Björk Halldórsdóttir, varaformaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Austurlands. Hún segir ljóst að hreindýrin hafi skemmt girðingarnar. Það breyti því þó ekki að finna þurfi lausn á málinu í sátt við alla aðila. Bæjarráð Hornafjarðar tók málið fyrir í annað sinn á fundi sínum síðdegis. Þar kom fram að vilji er til að leita allra leiða til að tryggja velferð dýranna og takmarka eins og kostur er tjón bænda vegna ágangs þeirra. Bæjarstjóra var falið að vinna að lausn málsins.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira