Fólk í glæpagengjum fái ekki vopnaleyfi 5. október 2012 00:30 Samkvæmt frumvarpi til nýrra vopnalaga fær fólk í skipulögðum glæpasamtökum ekki skotvopnaleyfi. Hells Angels hafa verið skilgreind sem slík samtök. nordicphotos/afp
Hverjum þeim sem er meðlimur eða í nánum tengslum við samtök sem teljast til skipulagðra glæpasamtaka verður synjað um skotvopnaleyfi, samkvæmt frumvarpi að nýjum vopnalögum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælir fyrir frumvarpinu í næstu viku. Samkvæmt greinargerð með því segir að fyrir liggi að hópar afbrotamanna hafi á síðustu misserum lagt áherslu á að komast yfir vopn. „Lögreglan hefur upplýsingar [um] að skammbyssum hafi verið smyglað inn í landið og þá hefur umsóknum um innflutning á skammbyssum fjölgað nokkuð frá árinu 2008. Því er það mat lögreglunnar að tryggja þurfi örugga vörslu og meðhöndlun þessara vopna. Þessa þróun má að einhverju leyti rekja til tilkomu erlendra glæpahópa hingað til lands og er því ástæða til að óttast aukna vopnaeign og vopnaburð,“ segir í greinargerðinni. Ögmundur segir að lögin eigi að gera það refsivert að þeir sem hafi ofbeldi gagnvart öðrum á stefnuskrá sinni fái vopn í hendur. „Við erum í slíkum heimi að við þurfum að taka ógnarvöldum skipulagðra glæpahópa alvarlega og hljótum að bregðast við því í löggjöf. Jafnframt erum við að forðast eftir megni að ganga á rétt þeirra sem eru með skotvopn undir höndum í allt öðrum tilgangi, svo sem til skotíþrótta og veiða.“ Lagt er til að sjálfvirkir og hálfsjálfvirkir rifflar og skammbyssur verði áfram bönnuð og undanþáguheimildir verði þrengdar. Það er gert vegna þess að grunur er um að ákvæðin hafi verið misnotuð, einkum um hálfsjálfvirkar skammbyssur. „Lítið hefur sést til þessara vopna í skotkeppnum og skotæfingasvæðum hér á landi. Svo virðist sem þessi skotvopn séu ekki keypt í þeim tilgangi að stunda skotfimi þrátt fyrir að leyfið fyrir skotvopninu sé fengið með vísan til skotíþrótta.“ Þá segir að þrátt fyrir að frekari þrengingar geti talist íþyngjandi fyrir fámennan hóp séu það smávægilegir hagsmunir þegar litið sé til almannahagsmuna. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira