Foreldrar uggandi yfir Bjarnarbolta - kennari segir gæsluna öfluga Valur Grettisson skrifar 9. október 2010 16:07 Fjör í Bjarnabolta. „
Þetta er nú búið að stórlagast. Einu sinni var það þannig að eina reglan væri sú að það mátti ekki koma við boltann með höndunum," segir Íþróttakennarinn Gunnar Magnús Jónsson um frekar umdeilt fótboltamót fjölbrautaskólans á Suðurnesjum. Mótið kallast Bjarnarbolti eða Bear Cup og hefur verið haldið árlega í um tíu ár. Það er þó ekki öllum sama, foreldri sem sendi Vísi myndband af mótinu var beinlínis uggandi en þar má sjá hvernig ungmennin eru slegin utan undir af dómurunum, aðrir slást og stundum leysist mótið upp í hópslagsmál. Öflug gæsla er á mótinu sem er iðulega haldið fyrir troðfullu húsi og enginn hefur slasast enn sem komið er að sögn Gunnars sem er einn þeirra sem hefur eftirlit með mótinu umdeilda. Gunnar segir að nemendafélaginu sé skylt að skila inn leikreglum fyrir mótið sem er alræmt fyrir að vera heldur gróft. Meðal annars er dómarafyrirkomulagið sérkennilegt en hann er klæddur í uppþvottahanska. Annar hanskinn er rauður á meðan hinn er gulur. Þeir tákna gula og rauða spjaldið. Brjóti leikmaður af sér fær viðkomandi löðrung frá dómaranum. Fái hann semsagt gula spjaldið er hann sleginn utan undir með gula hanskanum.Ungmennin í gulu vestunum eru í gæslunni en mjög öflug gæsla er á mótinu.„Skólayfirvöld tóku í taumana fyrir nokkrum árum og þá voru reglur settar á," segir Gunnar og bætir við að hann hiki ekki við að slaufa mótinu ef það virðist vera að fara úr böndunum. Gunnar bætir við að mótið sér á mjög gráu svæði og umdeilt meðal skólayfirvalda. Aftur á móti sé þetta einn af hápunktum ársins hjá nemendum og því reynt að koma til móts við þá. Enginn hefur slasast alvarlega á mótinu en Gunnar segir að einn nemandi hafi þurft að leita sér aðhlynningar á heilsuæslunni.Það var þó ekki vegna átaka heldur slasaðist hann einfaldlega í fótboltanum sjálfum.Gunnar útilokar samt ekki að fleiri hafi meiðst.„Það er nú samt húmor í þessu og engin illindi," segir Gunnar og bætir við að stelpurnar láta sig ekki heldur vanta, eitt liðið sem tekur þátt í ár er einmitt eingöngu skipað stúlkum. Þær keppa við strákana og gefa ekkert undan að sögn Gunnars.
Mest lesið Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Veður „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira