Forstjóri Valitors segist ekki hafa neina skoðun á Wikileaks 21. júní 2012 14:43 Viðar Þorkelsson.
Forstjóri Valitors á Íslandi, Viðar Þorkelsson, segir að það hafi verið uppi vísbendingar um að starfsemi Wikileaks samræmdust ekki reglum sem alþjóðlegu kortasamtökin setja, "en við höfum enga sérstaka skoðun á Wikileaks," bætti hann við spurður um álit sitt á Wikileaks. Aðalmeðferð fer nú fram í máli DataCell gegn Valitor í Héraðsdómi Reykjavíkur en fyrirtækið stefndi kortafyrirtækinu eftir að greiðslugátt, sem var hugsuð til þess að styrkja Wikileaks, var lokað, örskömmu eftir að hún var sett upp í júní 2011. Valitor heldur því fram að í umsókn frá Datacell hafi ekki verið greint frá því að fyrirtækið hygðist halda úti greiðslugátt til þess að styrkja þriðja aðila. Þessu til stuðnings var samstarfssamningur lagður til hliðsjónar, en í upptalningu á fyrirtækjum sem DataCell þjónustar, var ekki tekið sérstaklega fram að Wikileaks væri í þeim hópi. Ólafur Vignir Sigurðsson, eigandi DataCell, heldur því hinsvegar fram að hlekkur á greiðslugáttina hafi verið send með umsókninni svo það væri hægt að opna hana. Öðruvísi hefði ekki verið hægt að opna hana. Valitor vill aftur á móti meina að fyrirtækið hafi hreinlega leynt samstarfi sínu, en nokkru áður lokaði danska greiðslukortafyrirtækið Teller á öll viðskipti við DataCell vegna samstarfs þeirra við Wikileaks. Ástæðuna sögðu þeir á sínum tíma vera ótti við að skaða viðskipti sín við kortafyrirtæki. Þá kom ennfremur fram að einstaklingur hefði kannað grundvöll um samstarf við Valitor um að hýsa greiðslugátt til framalaga handa Wikileaks árið 2010. Forstjóri Valitors segir að þá hafi því verið hafnað þar sem fyrirtækið komt að þeirri niðurstöðu að slíkt samræmdist ekki reglum Valitors og alþjóðlegu kortasamsteypunnar. Þegar lögfræðingur DataCell, Sveinn Andri Sveinsson, spurði Viðar hver væri munurinn á því að styðja Wikileaks eða krabbameinssjúk börn, og hversvegna slíkt samræmdist ekki reglur, svaraði Viðar því til að hvert mál væri skoðað fyrir sig. Hann upplýsti einnig að starfsmaður frá Visa kortaþjónustunni í Evrópu hefði haft samband skömmu eftir að gáttin varð virk. Viðar segir starfsmanninn eingöngu hafa látið sig vita að gáttin væri í notkun, en um það vissi hann fyrir. Hann vildi ekki meina að viðmælandi sinn hafi gefið sér neinar fyrirskipanir, heldur hafi samskiptunum hreinlega lokið með þeim hætti að Viðar sagðist ætla að skoða málið frekar. Eins og kunnugt er þá lokuðu helstu kortafyrirtæki heimsins fyrir allar greiðslu til Wikileaks eftir að Wikileaks lak ógrynni upplýsinga úr sendiráðum Bandaríkjanna út um allan heim.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira