Innlent

Framsóknarmenn álykta um smokka

Mynd/Getty
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna áréttar fyrri ályktanir um mikilvægi þess að lækka skatt á smokkum úr 25,5% í 7%. Í tilkynningu frá sambandinu segir að það sé ein þeirra leiða sem færar séu til að gerra smokka ódýrari, eins og sóttvarnaráð hafi kallað eftir.

Þá er bent á að á síðasta ári hafi 24 einstaklingar greinst hér á landi með HIV, fleiri en nokkru sinni áður. „Tíðni leghálskrabbameins hefur einnig aukist, sem orsakast meðal annars af HPV veirusmitum,“ segja framsóknarmennirnir ungu og benda á að klamedíusmitum hafi einnig fjölgað. „Fólk sem hefur ekki efni á smokkum hættir ekki að stunda kynlíf, það hættir að stunda varið kynlíf.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×