Innlent

Fyrrverandi skólastjóri dró sér fé frá skólanum

Tálknafjarðarhreppur krefur manninn um tæpar tvær milljónir í skaðabætur.
Tálknafjarðarhreppur krefur manninn um tæpar tvær milljónir í skaðabætur.
Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi skólastjóra grunnskólans á Tálknafirði fyrir Héraðsdómi Vestfjarða fyrir fjárdrátt og brot í starfi.

Skólastjóranum fyrrverandi er gefið að sök að hafa dregið sér rúmlega eina og hálfa milljón króna af fjármunum skólans.

Í ákæru segir að maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hafi á tímabili frá 5. nóvember 2008 til 30. júlí 2009 misnotað aðstöðu sína sem skólastjóri, bæði á þáverandi heimili sínu að Innstu-Tungu í Tálknafirði, og í húsnæði Grunnskólans á Tálknafirði, að Sveinseyri. Hann hafi dregið sér samtals rúmlega eina og hálfa milljón með óheimilum millifærslum af bankareikningi skólans hjá Sparisjóði Vestfirðinga, sem skólastjórinn fór með vörslu á og hafði aðgang að með heimabanka. Af heildarupphæðinni færði maðurinn inn á eigin bankareikning tæpar 1,3 milljónir í nítján færslum. Samtals 230 þúsund færði hann svo í sex færslum inn á bankareikning eiginkonu sinnar.

Þessa fjármunii hagnýtti maðurinn sér í eigin þágu og fjölskyldu sinnar.

Tálknafjarðarhreppur gerir skaðabótakröfu í málinu, vegna Grunnskólans á Tálknafirði. Þess er krafist að skólastjórinn fyrrverandi greiði hreppnum tæpar tvær milljónir króna með vöxtum.- jss


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×