Lífið

Fyrsta myndin af Rainbow litlu

Glamúrfyrirsætan Holly Madison situr fyrir með dóttur sinni Rainbow Aurora í nýjasta hefti tímaritsins In Touch. Myndin af þeim mæðgum var tekin aðeins sjö dögum eftir fæðingu hnátunnar.

"Bara að halda á henni er svo gaman. Fæðingin var meira að segja auðveld – ég hló á meðan ég rembdist," segir Holly sem á Rainbow með kærasta sínum Pasquale Rotella.

Sæt á meðgöngunni.
"Ég fékk mænurótardeyfingu þannig að þetta var gaman. Hún gerði þetta afar auðvelt."

Kærustuparið.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.