Menning

Kynlífið í hámarki eftir fertugt

Bandaríski hjónabandsráðgjafinn og gúrúinn David Snarch hefur gefið út bók þar sem hann heldur því fram að unaðssemdir kynlífsins nái fyrst hámarki sínu þegar fólk er komið á fimmtugs-, sextugs- og sjötugsaldurinn. Kynlífsgúrúinn segir að tilfinningaþrungið kynlíf sé fyrst og fremst háð persónulegum þroska fólks en ekki líkamlegu atgervi. Í bók sinni bendir Snarch fólki á ýmsar leiðir til að njóta kynlífsins betur og eitt af ráðum hans til fólks er að hætta að elskast með lokuð augun. Hann segir að um 80 prósent fólks njóti ásta með lokuð augu og þar með í algeru myrkri. Hann ráðleggur fólki að opna augun og horfa í augu sálufélaga síns. Snarch segir ástina ekki vera fyrir byrjendur og er þar með í vissri mótsögn við þá skoðun norska rithöfundarins Knuts Hamsuns sem hélt því fram að menn gætu eins gengið út og skotið sig á fimmtíu ára afmælisdeginum, því þá færi getuleysið að gera vart við sig. Snarch segir að í raun sé það fólkið sem er komið yfir fertugt sem sitji með lykilinn að hamingjusömu hjónabandi og innihaldsríku kynlífið - spurningin sé bara að nota lykilinn rétt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×