Matur

Nýir siðir fylgja nýjum mönnum

"Þessi hátíð er bæði frábær landkynning og kynning á íslensku hráefni svo þetta er frábært framtak," segir Birgir Karl Ólafsson yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti um Food&Fun matreiðsluhátíðina. Gestakokkurinn sem mætir á Hótel Holt kemur frá Þýskalandi en þar á hann og eiginkona hans veitingastað.

Birgir Karl segist eflaust munu stela einhverjum sniðugum hugmyndum frá honum enda komi alltaf nýjir siðir með nýjum mönnum. "Kokkurinn ætlar að vera svolítið breytilegur í þessu. Hann ætlar að vera með tvo fiskirétti auk nautakjöts. Hingað til hafa þeir viljað lambið en ég er mjög sáttur við valið á nautinu því nautið okkar er frábært þótt það gleymist oft," segir Birgir Karl.

Lestu meira í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×