Innlent

Stýrði ekki atburðarásinni

Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirlýsinga og umræðna sem tengjast framgöngu Stöðvar 2 við komu Bobbys Fischers til Íslands í gærkvöldi. Þar neitar hann að hafa stýrt atburðarás á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. Þá segir Páll í hlutarins eðli að Stöð 2 hafi reynt eftir fremsta megni að tryggja sér sem bestan aðgang að Fischer. Í yfirlýsingunni segir orðrétt: Vegna yfirlýsinga og umræðna sem tengjast framgöngu Stöðvar 2 við komu Bobbys Fischers til Íslands í gærkvöldi er rétt að taka fram eftirfarandi:Undirritaður stýrði ekki atburðarás á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi og þaðan af síður gaf ég lögreglu fyrirmæli um gang mála. Aðspurður upplýsti ég yfirlögregluþjón hins vegar um að Bobby Fischer hefði óskað eftir því að fara beint inn á hótel en taka ekki þátt í formlegri móttökuathöfn eða veita viðtöl inni á flugvellinum strax eftir lendingu. Það liggur aftur á móti í hlutarins eðli að Stöð 2 reyndi eftir fremsta megni að tryggja sér sem bestan aðgang að Bobby Fischer, - og helst betri en keppinautanna. Slíkt gera allir fjölmiðlar í samkeppnisumhverfi og þannig tókst t.d. Ríkissjónvarpinu - fyrir atbeina íslenskra stjórnvalda - að ná viðtali við Fischer á Kastrup-flugvelli í gærdag þar sem aðrir fjölmiðlar höfðu ekki nema óbeinan aðgang og margir engan. Þetta gerist í samkeppni og við kveinkum okkur ekki.Tilkoma margumræddrar einkaflugvélar varð með þeim hætti, að Sæmundur Pálsson lýsti áhyggjum af vini sínum og skjólstæðingi á afar löngu og erfiðu ferðalagi til Íslands eftir sérstaklega erfiða fangavist í Japan upp á síðkastið, og kom þá til tals á milli okkar hvort það gæti auðveldað honum ferðina að fá einkavél beint til Reykjavíkur síðasta spölin í stað þess að bíða í Kaupmannahöfn eftir ferð til Keflavíkur. Í ljós kom að forsvarsmenn Baugs voru reiðubúnir að veita afnot af slíkri vél sem þeir hafa aðgang að.Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×