Formúla 1

Lætur Schumacher heyra það

Fernando Alonso
Fernando Alonso NordicPhotos/GettyImages

Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher hjá Ferrari sé óíþróttamannslegasti ökuþór í sögu Formúlu eitt og hlakkar til að losna við hann úr keppni á næsta ári eftir að Þjóðverjinn tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir yfirstandandi keppnistímabil.

Eftir að Alonso hafði verið með þægilegt forskot í keppni ökumanna í allt sumar, er nú Schumacher aðeins tveimur stigum á eftir honum eftir keppni helgarinnar. Alonso er ekki hrifinn af aðferðafræði Þjóðverjans og segir aðstandendur Formúlu 1 vera hliðholla Ferrari, en hann viðurkennir þó að Schumacher sé frábær ökumaður.

"Michael Schumacher er óíþróttamannslegasti ökumaður í sögu Formúlu eitt og enginn hefur fengið jafn mörg keppnisbönn á ferlinum og hann. Það breytir þó engu um það að hann hefur verið besti ökumaðurinn og það hefur verið mikill heiður og ánægja að keppa við hann - mótin verða kannski jafnari eftir að hann hættir," sagði Alonso, sem vill meina að ráðandi öfl í kring um íþróttina hafi verið Ferrari og Schumacher hliðholl.

"Það eru óneitanlega hagsmunaárekstrar í Formúlu 1. Við erum að tala um sigursælasta ökumann í sögu íþróttarinnar en honum veitir ekkert af smá hjálp. Hann hefur stundum fengið að fara yfir línuna á grófan hátt og það er auðvitað hneyksli," sagði Alonso.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×