Handbolti

Bikarmeistararnir í Digranesið

Stórskyttan Tite Kalandadze sækir hér að marki HK í leik liðanna í dhl deildinni í gærkvöld, en liðin mætast aftur í bikarnum síðar í mánuðinum - að þessu sinni í Digranesi
Stórskyttan Tite Kalandadze sækir hér að marki HK í leik liðanna í dhl deildinni í gærkvöld, en liðin mætast aftur í bikarnum síðar í mánuðinum - að þessu sinni í Digranesi Mynd/Vilhelm

Í dag var dregið í 32-liða úrslit karla og 16-liða úrslit kvenna í SS bikarnum. Í karlaflokki ber hæst að þar fá bikarmeistarar Stjörnunnar það erfiða verkefni að mæta HK mönnum, en Kópavogsliðið vann góðan sigur á bikarmeisturunum í deildinni í gær.

Eftirtalin lið mætast í 32-liða úrslitum karla og fara leikirnir fram 17. og 18. október. Íslandsmeistarar Fram sitja hjá í 32 liða úrslitunum.

ÍBV - Grótta

FH 2 - Njarðvík

ÍR 2 - Víkingur/Fjölnir

Haukar 2 - Haukar

Afturelding - Fylkir

Þróttur Vogum - Leiknir

Selfoss - Akureyri

HK 2 - Valur

Leiknir 2 - Valur 2

KR - Haukar U

Fylkir 2 - ÍR

Selfoss 2 - Stjarnan 2

Afturelding 2 - Höttur

KV - FH

HK - Stjarnan

Í kvennaflokki fara 16-liða úrslitin fram dagana 24.-25. október, en þar sitja Haukar, ÍBV, Valur og Stjarnan 2 hjá.

Stjarnan - HK

Haukar 2 - Fjölnir

Grótta - Fram

FH - Akureyri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×