Körfubolti

George Byrd í Hamar

George Byrd var öflugur með Skallagrímsmönnum á síðustu leiktíð
George Byrd var öflugur með Skallagrímsmönnum á síðustu leiktíð mynd/víkurfréttir
Miðherjinn George Byrd sem lék við góðan orðstír með Skallagrími í Borgarnesi á síðustu leiktíð, gengur í raðir Hamars/Selfoss um helgina. Þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is í gærkvöld. Byrd verður Hamarsmönnum eflaust mikill styrkur, en hann fær það hlutverk að fylla skarð Lewis Monroe sem var látinn fara frá liðinu á dögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×