Sport

Vel heppnað endurmenntunarnámskeið

Endurmenntunarnámskeið Félags tamningamanna og Félags hrossabænda sem haldið var í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í gær var mjög vel heppnað og greinilega mjög mikill áhugi fyrir svona námskeiðum. Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum var húsfylli í höllinni og þurfti að bæta við hátölurum fram á bar til að gestir gætu hlustað á fyrirlestrana, þar sem fyrirlestrarsalurinn var fullur.

Fyrir utan það að vera ein af fallegustu konum landsins þá hélt hún Herdís Reynisdóttir frábæran fyrirlestur um atferlisfræði, skap og skynjun og átti hún alla athygli gesta námskeiðsins sem voru á einu máli um það að fyrirlesturinn hafði verið mjög áhugaverður og lærdómsríkur.

Anton Níelsson meðkennari Herdísar á Hólum hélt einnig frábæran fyrirlestur og var sýnikennsla hans einnig mjög lærdómsrík og fór þar greinilega mikill fagmaður og var áhugavert að sjá til hans í tamningarhringnum í höllinni. Þorvaldur Árni Þorvaldsson var stressaður á fyrstu 10 sekúndunum í sínum fyrirlestri og svo hvarf það þegar þessi snilldar knapi fór á flug.

Páll Bragi var svona einhverskonar leynigestur á þessu námskeiði þar sem hann var hvergi skráður í dagskránna og var sýnikennsla hans með eindæmum góð. Páll Bragi var skýr í máli og sagði hlutina eins og kennari á að gera, ja svona eins og að útskýra fyrir börnum hvernig á að gera hlutina, virkar oft best. Þá kom óðalsbóndinn á Þjóðólfshaga og var ekki að skafa af því og var fyrirlestur hans mjög góður og sýnikennslan ekki síðri þar sem hann sat ungan fola sem fréttamaður veit ekkert hvað heitir, en fallegur var hann.

Ekki verður tíundað hér í orðum um hvað fyrirlestrarnir voru heldur ætlum við að bjóða ykkur lesendur góðir uppá það að horfa á þá í heild sinni á Vef TV Hestafrétta og einnig sýnikennsluna.

Fara á Vef TV




Fleiri fréttir

Sjá meira


×