Fótbolti

UEFA Cup: Góður sigur Tottenham í Portúgal

Robbie Keane er hér borinn á kóngastóli eftir fyrra mark sitt í Portúgal.
Robbie Keane er hér borinn á kóngastóli eftir fyrra mark sitt í Portúgal. AFP

Tottenham er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn við portúgalska liðið Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld eftir 3-2 útisigur. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í kvöld.

Tottenham hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik en Dimitar Berbatov, sem skoraði hafði í hverjum leik í keppninni til þessa, náði ekki að nýta þau fínu færi sem hann fékk. Robbie Keane og Steed Malbranque komu Tottenham svo í 2-0 með mörkum á 57. og 72. mínútu.

Lið Braga, sem á nokkrar sögulegar rætur að rekja til Arsenal á Englandi, gafst þó ekki upp og jafnaði leikinn á fimm mínútna kafla frá 76. til 81. mínútu og voru þar að verki þeir Paulo Jorge og Ze Carlos. Fyrra markið var reyndar skorað etir ansi umdeilda vítaspyrnu. Heimamenn sofnuðu svo á verðinum á lokamínútum uppbótartíma þar sem Robbie Keane skoraði sigurmarkið og tryggði enska liðinu dýrmætan sigur á útivelli.

Þetta var eini útisigurinn í keppninni í kvöld fyrir utan 1-0 sigur Werder Bremen gegn Celta Vigo frá Spáni. Bremen er til alls líklegt í keppninni. Lens sigraði Bayern Leverkusen 2-1 og er þýska liðið því í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn.

PSG lagði Benfica 2-1, Maccabi Haifa og Espanyol skildu jöfn 0-0, Rangers náði aðeins 1-1 jafntefli á heimavelli gegn meiðslum hrjáðu liði Osasuna frá Spáni, þar sem heimamenn jöfnuðu í blálokin og eiga erfitt verkefni fyrir höndum í síðari leiknum.

Sevilla náði óvænt aðeins jafntefli 2-2 á heimavelli gegn Shakhtar Donetsk og fyrr í kvöld vann Newcastle góðan 4-2 sigur á Grétari Rafni Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar - sem þó eiga enn veika von um að komast áfram á útimörkum sínum tveimur í kvöld. Grétar varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í leiknum sem sýndur var beint á Sýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×