Fótbolti

UEFA-bikarinn: Brann komst áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Örn í leik með Brann gegn þýska liðinu Hamburg í UEFA-bikarkeppninni fyrr í haust.
Kristján Örn í leik með Brann gegn þýska liðinu Hamburg í UEFA-bikarkeppninni fyrr í haust. Nordic Photos / Getty Images

Nú er ljóst hvaða 24 lið eru komin áfram í 32-liða úrslit UEFA-bikarkeppninnar í fótbolta en lokaumferðin í riðlakeppninni fór fram í kvöld.

Íslendingaliðið Brann komst áfram þrátt fyrir að liðið átti frí í kvöld. Botnliðin í  D-riðli, Dinamo Zagreb og Rennes, gerðu jafntefli í kvöld en annað hvort liðið hefði þurft að vinna með nokkurra marka mun til að koma Brann úr þriðja sæti riðilsins.

Fjögur Íslendingalið eru komin áfram í keppninni. Ensku liðin Everton, lið Bjarna Þórs Viðarssonar og Bolton, lið Heiðars Helgusonar verða í pottinum þegar dregið verður í 32-liða úrslit á morgun og einnig Brann sem fyrr segir og sænska liðið Helsingborg, lið Ólafs Inga Skúlasonar.

Úrslit leikja í kvöld og lokastaðan í riðlunum:

A-riðill:

AZ - Everton 2-3

Larissa - Nürnberg 1-3

Lokastaðan:

1. Everton 12 stig

2. Nürnberg 7

3. Zenit 5

4. AZ 4

5. Larissa 0

B-riðill:

Aberdeen - FC Kaupmannahöfn 4-0

Atletico - Panathinaikos 2-1

Lokastaðan:

1. Atletico 10 stig

2. Panathinaikos 9

3. Aberdeen 4

4. FC Kaupmannahöfn 3

5. Lokomotiv Moskva 2

C-riðill:

AEK - Villarreal 1-2

Fiorentina - Mladá 2-1

Lokastaðan:

1. Villarreal 10

2. Fiorentina 8

3. AEK 5

4. Mladá 3

5. Elfsborg 1

D-riðill:

Rennes - Dinamo Zagreb 1-1

Hamburg - Basel 1-1

Lokastaðan:

1. Hamburg 10 stig

2. Basel 8

3. Brann 4

4. Dinamo Zagreb 2

5. Rennes 2

Dregið verður í 32-liða úrslit keppninnar á morgun. Leikið verður heima og að heiman.

Sigurvegarar riðlanna í UEFA-bikarkeppninni mæta liðunum sem lentu í þriðja sæti riðlanna.

Liðin sem lentu í öðru sæti riðlanna í UEFA-bikarkeppninni mæta liðunum sem lentu í þriðja sæti riðlanna í Meistaradeild Evrópu.

Sigurvegarar riðla í UEFA-bikarkeppninni: Everton, Atletico Madrid, Villarreal, Hamburg, Leverkusen, Bayern München, Getafe og Bordeaux.

3. sæti riðlanna í UEFA-bikarkeppninni: Zenit St. Pétursborg, Aberdeen, AEK, Brann, Zürich, Bolton, Anderlecht og Galatasaray.

2. sæti riðlanna í UEFA-bikarkeppninni: Nürnberg, Panathinaikos, Fiorentina, Basel, Spartak Moskva, Braga, Tottenham og Helsingborg.

3. sæti riðlanna í Meistaradeild Evrópu: Sporting Lissabon, Slavia Prag, Benfica, Rosenborg, Marseille, Werder Bremen, Rangers og PSV Eindhoven.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×