Lífið

Nú fáum við stelpurnar heim!

Breki Logason skrifar
Beggi og Pacas eftir að sigurinn var ljós. Þeir voru himinlifandi.
Beggi og Pacas eftir að sigurinn var ljós. Þeir voru himinlifandi. MYND/SIGRÍÐUR GUÐLAUGSDÓTTIR

„Við erum ofboðslega þakklátir og hamingjusamir. Það fyrsta sem kom upp í hugann á okkur var að nú fengjum við stelpurnar heim," segir Guðbergur Garðarsson betur þekktur sem Beggi á Hæðinni. Þeir Beggi og Pacas voru sigurvegarar Hæðarinnar í kvöld og fengu þar 2 milljónir króna í verðlaunarfé.

Það var mikil spenna hjá pörunum á Hæðinni en þáttur kvöldsins var í beinni útsendingu. Pörin þrjú lögðu mikla vinnu í að gera upp íbúðirnar á Hæðinni og þau buðu vinum sínum í þátt kvöldsins.

„Við erum svo þakklátir að ég veit þú trúir því ekki. Þegar við heyrðum að við hefðum unnið komu bara tár," sagði Beggi í samtali við Vísi nú í kvöld og það mátti heyra á honum að spennan var mikil.

„Maður titrar alveg."

Beggi og Pacas voru búnir að lýsa því yfir að ef þeir myndu vinna fengju tvær dætur Pacasar sem búsettar eru í Brasilíu að koma í heimsókn hingað til lands.

„Það er líka svo æðislegt að þær eru úti í Brasilíu að fylgjast með á Vísi. Þær eru búnar að hringja á fullu í allt kvöld og voru alveg jafn stressaðar og við."

Beggi segir að í raun hafi þeim ekki dottið í hug að þeir myndu sigra enda hin pörin tvö með glæsilegar íbúðir. „Við vonuðumst auðvitað til þess og við þökkum innilega fyrir stuðninginn. Takk elsku Íslendingar fyrir að kjósa okkur."


Tengdar fréttir

Beggi og Pacas vilja dæturnar heim

„Við erum eins og lítil börn að bíða eftir nammideginum," segir Beggi á Hæðinni. Hann og Pacas eru orðnir spenntir fyrir lokaþættinum í kvöld.

Beggi og Pacas sigurvegarar Hæðarinnar

Beggi og Pacas voru sigurvegarar í símakosningu um fallegustu hönnun á Hæðinni. Gulli Helga stjórnandi þáttanna tilklynnti úrslitin í lokaþættinum í kvöld. Fjörtíu þúsund manns kusu í símakosningunni sem staðið hefur í eina viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×