Lífið

Beggi og Pacas sigurvegarar Hæðarinnar

Beggi og Pacas voru sigurvegarar í símakosningu um fallegustu hönnun á Hæðinni. Gulli Helga stjórnandi þáttanna tilklynnti úrslitin í lokaþættinum í kvöld. Fjörtíu þúsund manns kusu í símakosningunni sem staðið hefur í eina viku.

Mikil spenna ríkti á Hæðinni í kvöld þar sem pörin voru samankomin í húsunum sem þau bjuggu í á meðan á upptöku þáttanna stóð. Þau höfðu boðið vinum og vandamönnum til að vera með sér á úrslitastundinni. Mikil fagnaðarlæti brutust svo út meðal vina sigurvegaranna þegar úrslitin voru ljós.

Þá hafði fjöldi manns safnast saman á kosningavökum víða um land til að styðja sitt uppáhalds par.

Pörin sýndu öll mikinn keppnisanda og metnað sem greint hefur verið frá í fréttum og myndbrotum hér á Vísi.

Starfsfólk Vísis óskar sigurvegurunum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og pörunum öllum fyrir góða frammistöðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×