Bakþankar

Ástin á tímum kaloríunnar

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Á vefnum bleikt.is, sem helgaður er samskiptum kynjanna, birtist á dögunum viðtal við „einn eftirsóttasta piparsvein landsins". Þar er hjartaknúsarinn spurður spjörunum úr um ástarlífið og hitt kynið. Þetta er fróðleg lesning og má ráða af samhenginu að svarandinn hefur teygað bikar reynslunnar í botn í þessum efnum.

Það er ekki erfitt að átta sig á hvers vegna konur í stórum stíl ásælast pipar­sveininn umrædda; silkimjúkur fagur­galinn er beinlínis ómótstæðilegur. Dæmi: Spurður hvort hann sé eitthvað að deita þessa dagana svarar hann: „Stöðugt. Það er talsverð rannsóknarvinna í gangi; viðtöl og gagnaöflun." Þarna skírskotar piparsveinninn til starfs síns sem málafærslumaður til að segja undir rós að hann vaði í „kjéllingum". Ég er ekki kona, en gott ef ég blotnaði ekki aðeins þegar ég las þetta.

Ég verð hins vegar að játa að ég klóraði mér í hausnum yfir svari piparsveinsins viðspurningunni „hvað kveiki neistann". „Falleg stúlka sem kemur nakin til manns með kaldan bjór og samloku til að tilkynna að leikurinn í enska boltanum sé byrjaður og spyr hvað maður vilji gera í leikhléi."

Nú finnst mér ekki slæmt að fá mér bjór endrum og eins og slæ ekki hendinni á móti samloku, þá hún er að mér rétt. En mér finnst eitthvað ankannalegt við tilhugsun­ina um að láta fallega stúlku norpa berrassaða við hliðina á mér á stofusófanum í 45 mínútur plús viðbótartíma, meðan ég hlusta á Gaupa lýsa fótbolta, graðga í mig samloku og skola henni niður með bjór.

Gefum okkur engu að síður að ég sé til í tuskið í hálfleik, nakta stúlkan reiðubúin að líta framhjá majónesgljáanum í munnvikum mínum og spínatinu á milli tannanna, og við látum til skarar skríða. Sökum ölþambs eru aftur á móti nokkrar líkur á því að ég eigi eftir að ropa í miðjum klíðum svo upp gjósi beikonmettuð bjórstybba. Færi ekki betur á því að kýla vömbina á eftir rekkjubrögðum frekar en á undan?

Satt best að segja finnst mér forgangs­röðun fantasíunnar frekar til marks um matar­fíkn en kynorku. Það er athyglis­vert í ljósi þess að piparsveinninn er kunnur fyrir að leiðast ekki að sýna stinnan kropp sinn opinberlega við ýmis tækifæri. Viðtalið afhjúpar því á sinn hátt að skemmandi áhrif útlitsdýrkunar vorra tíma eru ekki einvörðungu bundin við konur. Í þessu snaggaralega viðtali hafa bleikt.is og pipar­sveinninn því sagt okkur talsvert meira um hlutskipti kynjanna en þau sjálfsagt lögðu upp með. Takk fyrir það.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×