Innlent

Valgerður segir Guantanamó-áformin andvana fædd

Þorbjörn Þórðarson. skrifar
Valgerður Sverrisdóttir
Valgerður Sverrisdóttir

Áform Bandaríkjamanna um að vista hér fanga úr Guntanamo-fangelsinu voru andvana fædd segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún segist muna eftir þessu eins og þetta hafi gerst í gær því sér hafi þótt þetta svo sérkennilegt.

Snemma árs 2007, meðan George W. Bush var enn forseti Bandaríkjanna fóru bandarísk stjórnvöld þess á leit við Íslendinga að taka við föngum frá Guantanamo á Kúbu.

Carol van Voorst, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, ræddi þetta við Valgerði Sverrisdóttur, þáverandi utanríkisráðherra. Í leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar er Valgerður sögð hafa fagnað því, að fangabúðunum á Kúbu yrði lokað þegar fram liðu stundir. Hins vegar hafi íslensk stjórnvöld þurft að hugsa málið áður en svar yrði gefið. Bandaríkjamönnum var síðan gefið afsvar hinn 29. mars 2007 þar sem Íslendingar segjast hvorki hafa sérfræðikunnáttu né aðstöðu til að taka við föngum frá Guantanamó. „Það er rétt að sendiherrann kom til mín og fór þess á leit við okkur Íslendinga að við yrðum við þessari beiðni, en mér fannst þetta í raun og mjög fjarstætt í upphafi en ég vildi að málið yrði skoðað í ráðuneytinu og þetta færi í ferli þar eins og öll erindi sem berast ráðuneytum. Síðan var þessu svarað með rökum, að sjálfsögðu neitandi," segir Valgerður.

„Ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær"

Hún segir aðspurð að ekki hafi komið fram í beiðni sendiherrans um hversu marga fanga væri að ræða. „Ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær því mér fannst þetta eitthvað svo sérkennilegt að standa frammi fyrir þessari beiðni Bandaríkjamanna," segir Valgerður.

Málið var ekki rætt í ríkisstjórn Íslands. „Nei, þetta var alfarið mál utanríkisráðuneytisins því við töldum þetta ekki gerlegt. Ef þetta hefði verið eitthvað sem hefði verið skoðað í alvöru þá hefði ég að sjálfsögðu rætt það við forsætisráðherra, en þetta fór aldrei á það stig að þetta kæmi í raun til greina."

Valgerður segir að auk þess hafi verið hæpinn lagalegur grundvöllur verið fyrir þessu. „Allra hluta vegna hugnaðist okkur þetta ekki," segir hún.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×