Fastir pennar

Aðeins of glæsileg uppbygging

Aðstaða til íþróttaiðkunar á Íslandi hefur tekið gríðarlegum stakkaskiptum á undanförnum árum. Ný fjölnota íþróttahús og gervigrasvellir sem nota má allt árið hafa komið til sögu í fjöldamörgum sveitarfélögum. Þetta hefur komið öllum íþróttaiðkendum til góða, ekki sízt börnum og unglingum. Þótt mörg þessara mannvirkja hafi risið í samstarfi íþróttafélaga og sveitarfélaga hafa skattgreiðendur borið mest af kostnaðinum og glæsileg uppbygging íþróttamannvirkja á sinn þátt í fjárhagsstöðu margra sveitarfélaga, sem er ekki alveg eins glæsileg.

Stundum hefur verið gagnrýnt hversu miklu fé hefur verið varið til íþróttamannvirkja, til dæmis í samanburði við menningarhús. Ábendingar um að stjórnmálamenn séu líklegir til að beita sér fyrir háum fjárframlögum til íþróttamannvirkja vegna þess hvað íþróttafélög séu gagnlegir bakhjarlar í prófkjörs- og kosningabaráttu eru heldur ekki út í bláinn.

Ef marka má áfangaskýrslu starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, sem var falið að skoða breytingar á rekstri íþróttamannvirkja, hefur verið farið fram með meira kappi en forsjá í uppbyggingunni. Niðurstaða starfshópsins er sú að í Kópavogi sé „mikil umframafkastageta fyrir hópíþróttir“, enda voru bæjaryfirvöld þar í bæ stórtækust í uppbyggingunni í góðærinu.

Starfshópurinn leggur til að íþróttamannvirkin í Kópavogi verði fullnýtt áður en ráðizt verði í byggingu fleiri íþróttahúsa og -valla á höfuðborgarsvæðinu. Í því skyni verði meðal annars komið á samræmdri gjaldskrá á milli sveitarfélaganna þannig að þau geti leigt tíma í íþróttamannvirkjum sín á milli, komið verði upp gagnabanka um áhöld og tæki sem leigja megi á milli íþróttahúsa svo ekki þurfi að kaupa margt af hverju og tekið verði upp sameiginlegt kerfi til að fylgjast með nýtingu og aðsókn í íþróttamannvirkjum sveitarfélaganna. Þá er lagt til að skoðaðir verði möguleikar á sameiginlegum innkaupum og útboðum.

Loks leggur starfshópurinn til að staðsetning dýrustu mannvirkjanna, með mesta afkastagetu, verði framvegis ákveðin í samvinnu sveitarfélaganna til að tryggja sem bezta nýtingu til framtíðar.

Allt hljómar þetta býsna skynsamlega. Það hljóta að vera hagsmunir skattgreiðenda að sveitarfélögin vinni saman og samnýti dýr mannvirki. Þáttur í því er það sem starfshópurinn leggur líka til; að nýta megi frístunda- og íþróttastyrki í einu sveitarfélagi til að stunda íþróttir í öðru. Hópurinn bendir á að börn og unglingar þurfi oft að ferðast um langan veg til að stunda íþróttir eða tómstundir í eigin sveitarfélagi, þótt stutt sé í íþróttamannvirki í nágrannasveitarfélagi. Í slíku fyrirkomulagi er auðvitað ekkert vit.

Nú þegar harðnar á dalnum þurfa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, sem að mörgu leyti eru runnin saman í eina samfellda borg, að sýna vilja til samstarfs og samnýtingar dýrra fjárfestinga. Það á ekki eingöngu við um íþróttamannvirkin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×