Bakþankar

Paraben

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Það eina sem ég veit fyrir víst er að heimur versnandi fer. Mengunin og plastið og gerviefnin og sykurinn og kaffið og ruslið. Áhyggjur eru í tísku og eins og við á um aðrar tískuvörur þarf markaðurinn alltaf eitthvað nýtt.

Öðru hvoru skýtur upp orðum eins og transfitusýrur, aspartam og paraben, óskiljanlegum orðum sem bera með sér ógn og botnlausa sektarkennd, sérstaklega gagnvart komandi kynslóðum.

Ég heyrði fyrst talað um paraben nýlega þegar vinkona mín, í umræðum um daginn og veginn og heiminn sem versnandi fer, nefndi það í tengslum við brjóstakrabbamein, ófrjósemi og öll kremin sem fólk er alltaf að bera á börnin sín.

Ég fór beint á netið og þetta voru þær upplýsingar sem ég fann: Parahýdró­benzóöt eða paraben eru rotvarnarefni sem hvað mest eru notuð í snyrtivörur. Paraben eru í sjampói, svitalyktar­eyði, hárnæringu, húðkremi, tannkremi og kökukremi og er ætlað að lengja mögulegan notkunartíma þessara nauðsynjavara. Eitt parabenið, methyl­paraben, finnst í bláberjum og vínberjasteinum í náttúr­unni og er eitt af því sem gerir bláber svo frábær til andoxunar. Paraben voru löngum talin hættulaus. En ekki lengur!

Rannsóknir sýna fram á tengsl milli parabenefna og ófrjósemi og hormónaójafnvægis, og notkun svitalyktareyðis hefur verið tengd við brjóstakrabbamein. Ekkert hefur hins vegar verið sannað um þessi tengsl.

Á netinu takast á hagsmunahópar þeirra sem vilja selja vörurnar sínar áfram, sama hvað er í þeim, og hagsmunahópar neytenda, sem hafa oft ekki aðrar upplýsingar en þær að gerð hafi verið rannsókn, um hvað sé í raun satt. Hagsmunahópar þeirra sem hafa fundið upp annað efni til að koma í staðinn fyrir paraben blanda sér í baráttuna. Allir geta vísað í vísindamenn sem túlka niðurstöður rannsókna þeim í hag. Með öðrum orðum: rannsóknir voru gerðar og vísindamenn greinir á um niðurstöðuna. Hljómar kunnuglega?

Ég bæti parabeninu að sjálfsögðu við transfitusýrurnar og aspartamið, e-efnin og allt hitt sem ég leita að á umbúðum í hvert sinn sem ég fer í búð með stækkunar­glerið og válistann. Bráðum hætti ég að hafa tíma til að kaupa inn. Kannski ég fari bara að versla alfarið í rándýru lífrænu búðunum þar sem allt er hollt og hættulaust - svo vitað sé - ennþá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×