Innlent

Meint brot lög­reglu­manna enn í rann­sókn hjá Ríkis­sak­sóknara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að rannsókn málsins sé á lokastigi.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að rannsókn málsins sé á lokastigi. Mynd/ GVA.

Rannsókn á máli tveggja fyrrverandi starfsmanna Sérstaks saksóknara, þeirra Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, stendur enn yfir. Hún er á lokastigi segir Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, sem fer með rannsókn málsins.

Mennirnir eru ákærðir fyrir brot á þagnarskyldu í starfi með því að hafa nýtt gögn frá Sérstökum saksóknara í skýrslu sem þeir unnu á vegum einkafyrirtækis síns sem unnin var fyrir þrotabú Milestone. Gögnin tengdust líka rannsón sérstaks saksóknara á Vafningsmálinu sem tengdist lánveitingu frá Glitni til Milestone í gegnum félögin Vafning og Svartháf.

Í dómi í Vafningsmálinu, sem kveðinn var upp fyrir áramót, féll kostnaður vegna málsvarnarlauna verjenda málsins jafnt á ríkið og sakborninga, þrátt fyrir að sakborningar hefðu verið sakfelldir. Fjölskipaður dómur rökstuddi þá ákvörðun með því að Jón Óttar og Guðumundur Haukur hefðu sætt kæru í tengslum við störf sín fyrir skiptastjóra þrotabús Milestone.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×