Lífið

Bæði Mikael og Steinunn mættu

Ellý Ármanns skrifar
Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru í Gerðarsafni í Kópavogi í gær þegar verðlaun fyrir bestu blaðaljósmyndir og blaðamennsku ársins 2012 voru veitt var andrúmsloftið frábært.

Sunna Valgerðardóttir blaðakona á Fréttablaðinu hlaut verðlaun fyrir umfjöllun ársins fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.

Smelltu hér til að skoða allar myndirnar.

"Ég er óendanlega stolt af þér, Sunna, og hamingjusöm fyrir þína hönd," skrifaði Steinunn Stefánsdóttir sem hætti sem aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins í vikunni á Facebooksíðuna sína í gær. Hér má sjá Steinunni óska Sunnu og fjölskyldu hennar til hamingju.

Fréttamaður Stöðvar 2 Andri Ólafsson var tilnefndur í flokki rannsóknarblaðamennsku fyrir afhjúpandi fréttir af aðkallandi fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins EIR.

Mikael Torfason nýráðinn ritstjóri Fréttablaðsins mætti ásamt fjölskyldu sinni.

Freyr Einarsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, Baldur Hrafnkell Jónsson, kvikmyndatökumaður á Stöð 2 sem fékk verðlaun fyrir fréttamyndskeið ársins, Egill Aðalsteinsson, kvikmyndatökumaður á Stöð 2 fékk verðlaun í flokknum fagmennska og Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2.

Ljósmyndararnir stilltu sér upp fyrir myndatöku eftir verðlaunaafhendinguna og viti menn pallurinn hrundi undan þeim. Menn voru léttir í lund og engum varð meint af.

Sjá meira um verðlaunaafhendinguna hér.

Björk Eiðsdóttir, sem sagði upp starfi sínu á dögunum sem ritstjóri Séð og heyrt, fór eins og heimsþekkt er orðið í mál við íslenska ríkið fyrir hönd dóttur sinnar, Blævar Bjarkardóttur Rúnarsdóttur.

Bryndís Sigurðardóttir og Andri Ólafsson.
Blær, Björk Eiðsdóttir og Elín Arnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×