Harmageddon

Fjögurra ára drengur lifði af skotárásina í Naírobí eftir að hafa sagt árásarmanni að hann væri vondur maður

Frosti Logason skrifar
Hinn ungi Elliott Prior ásamt systur sinni Amelie. Fórnarlamb Íslamistanna liggur í valnum á bak við.
Hinn ungi Elliott Prior ásamt systur sinni Amelie. Fórnarlamb Íslamistanna liggur í valnum á bak við.
Hinn ungi Elliott Prior, frá Bretlandi, er sagðu hafa sýnt ótrúlegt hugrekki eftir að móðir hans hafði orðið fyrir skoti eins gíslatökumannsins í verslunarmiðstöðinni í Naíróbi í Kenía.

Eftir að hafa séð móður sína skotna í mjöðm er hinn ungi Elliott Prior sagður hafa staðið andspænis vopnuðum manni og gargað á hann, „Þú ert vondur maður, leyfðu okkur að fara.“

Til allrar hamingju virtist maðurinn iðrast eitthvað við að sjá drenginn og sex ára systur hans Amelie, því hann rétti þeim báðum Mars súkkulaðistykki og sagði að þeim væri frjálst að fara.

Móðir þeirra, hin 35 ára gamla Amber Prior, er þá sögð hafa gripið með sér tvö börn til viðbótar, þar á meðal særðan tólf ára dreng en móðir hans var ein hinna látnu í árásinni, og farið með þau öll út úr verslunarmiðstöðinni.

Myndir af börnunum standandi fyrir utan verslunarmiðstöðina með súkkulaðistykki í hendi hafa farið sem eldur í sinu um internetið. 

Rétt um það bil sem Amber var á leiðinni út með börnin er hryðjuverkamaðurinn sagður hafa hrópað:

„Við erum bara að drepa fólk frá Bandaríkjunum og Kenía, ekki Breta. Takið Íslams trú. Fyrirgefið okkur, við erum ekki skrímsli.“








×