Innlent

Margt um manninn í Bláfjöllum í dag

Það var margt um manninn í Bláfjöllum í dag á fyrsta opnunardegi vetrarins. Skíða- og snjóbrettafólk var ekki lengi að taka við sér og voru brekkurnar vel troðnar þegar myndatökumann Stöðvar 2 bar að garði.

Jafnt ungir sem aldnir renndu sér niður brekkurnar í vetrarsólinni og var gleðin greinilega við völd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×