Lífeyrissjóðir bara á eftir slitastjórn Glitnis 6. febrúar 2013 06:00 Fimm lífeyrissjóðir hafa farið fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson endurgreiði meintan ofgreiddan launakostnað. Fréttablaðið/GVA
Lífeyrissjóðir í hópi kröfuhafa gömlu bankanna hafa ekki gert athugasemdir við launakostnað hjá slitastjórnum Kaupþings og LBI. Fimm sjóðir telja að laun hafi verið ofgreidd hjá slitastjórn Glitnis. Kröfuhafar Kaupþings og LBI, gamla Landsbankans, hafa engar athugasemdir gert við launakostnað hjá slitastjórnum bankanna. Gerð hefur verið ítarleg grein fyrir launakostnaði slitastjórnanna á kröfuhafafundum bankanna. Þetta kemur fram í svörum fulltrúa þrotabúanna við fyrirspurn Markaðarins um málið. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að fimm lífeyrissjóðir í hópi kröfuhafa Glitnis teldu að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson, sem sitja í slitastjórn bankans, hefðu oftekið sér ríflega 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín og sinna fyrirtækja fyrir þrotabú bankans. Hafa lífeyrissjóðirnir farið fram á það að Héraðsdómur Reykjavíkur sjái til þess að þrotabúin fái endurgreitt meintan oftekinn launakostnað. Í viðtali við Vísi á laugardag sagði Steinunn hins vegar að það væri alrangt hjá sjóðunum að launakostnaður hefði verið óeðlilega hár. Þá sagði hún tímagjald hjá slitastjórninni mjög sambærilegt við tímagjald hjá öðrum slitastjórnum landsins. Krafa sjóðanna var sett fram eftir að tveir þeirra, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður, fengu sundurliðun á launakostnaði Glitnis afhenta í haust eftir nokkuð þóf. Kom þar fram að samanlagt námu greiðslur til Steinunnar og Páls, að viðbættum greiðslum vegna útseldrar vinnu fulltrúa á þeirra vegum, 842 milljónum króna frá því að slitastjórnin var skipuð í maí 2009 og fram á mitt ár 2012. Loks kom fram í svörum við fyrirspurn Markaðarins að samið hefði verið um langflestar kröfur lífeyrissjóða á hendur Kaupþingi og LBI án aðkomu dómstóla.
Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Fleiri fréttir „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Sjá meira