Bakþankar

Strákarnir okkar hvernig sem fer

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ég man eftir fyrsta landsleiknum sem ég mætti á í Laugardalnum. Pabbi skutlaði mér og það reyndist lítið mál að fá miða. Samt voru Spánverjar mættir í heimsókn með stórstjörnur í flestum stöðum. Ásgeir heitinn Elíasson stýrði liðinu í fyrsta sinn, treysti á atvinnumenn og Framara og úr varð 2-0 sigur. Níu ára strákur rölti skælbrosandi út á stoppistöð og tók tvistinn heim. Stoltur eftir ógleymanlegt kvöld.

Í kvöld verður fámennt á götum landsins. Níu þúsund Íslendingar mæta í Laugardalinn á meðan aðrir sitja límdir við útvarps- eða sjónvarpstækið. Biðin er á enda. Króatarnir eru mættir og sæti á heimsmeistaramótinu, já HM í Brasilíu, í húfi. Fjarlægur draumur er orðinn raunhæfur. Tveir leikir skera úr um örlög Íslands. Verðum við fámennasta þjóðin í sögunni til að komast í lokakeppnina? Fólk í öllum hornum heimsins fylgist með okkur. Grínlaust.

Væntingarnar eru miklar fyrir leikina tvo enda yrði grátlegt að komast ekki á HM úr því sem komið er. Hins vegar má ekki gleyma leið strákanna í þennan möguleika. Stórbrotin mörk Gylfa Þórs Sigurðssonar í Slóveníu og Albaníu og endurkoma aldarinnar með Jóhann Berg Guðmundsson í fararbroddi í Bern. Ísland hefur gæðaleikmenn til að leggja hvern sem er að velli en góðir leikmenn mynda ekki alltaf gott lið.

Alfreð Finnbogason, markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar, situr á bekknum. Gunnleifur Gunnleifsson, aldursforseti liðsins, útvegaði samkeppnisaðilum sínum í markinu æfingaaðstöðu í aðdraganda leikjanna. Strákarnir bera virðingu hverjir fyrir öðrum, róa í átt að sama markmiði þótt eigið egó sé sært. Þannig hafa strákarnir stigið risastórt skref í undankeppninni sem nú er að ljúka. Fari allt á besta veg getur ný kynslóð níu ára drengja stigið upp í strætó að leik loknum með stjörnur í augunum yfir hetjunum sínum. En hvernig sem fer í kvöld getum við verið stolt af strákunum okkar.


Tengdar fréttir

Tekið sem sjálfsögðum hlut

Lífið tekur stöðugum breytingum. Sumum fagnar maður en aðrar koma manni í opna skjöldu. Það er oft ekki fyrr en við breytingar sem fólk áttar sig á öllu því góða sem það hefur í langan tíma tekið sem sjálfsögðum hlut.

Nokkrar hoppandi fótboltagórillur

Ég hef aldrei kynnst öðru eins spennufalli og á þriðjudagskvöldið þegar karlalandslið Íslands í knattspyrnu tryggði sér sæti í umspili um laust sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Afrek hafði unnist sem erfitt er að setja í samhengi. Það er hins vegar mikið og einstakt.

Hvað finnst þér um byssur?

Ferðalög til útlanda eru sjaldan jafnvel heppnuð og þegar maður sækir góða vini heim. Á framandi stöðum er gott að eiga góða að.

Frá helvíti til himna

Mínar verstu minningar úr grunnskóla eru úr skólasundi. Aldrei hlakkaði ég til að fara út í Vesturbæjarlaug og hlusta á sundkennarana þylja "beygja, kreppa, sundur, saman“. Í fjórar vikur, ár eftir ár, varð maður að láta sig hafa það. Ástæðan fyrir því hve leiðinlegt mér þótti í lauginni var einföld. Mér var fyrirmunað að læra sundtökin.

Bliki í þrjár klukkustundir

Það er erfitt að útskýra það og ég hef á tilfinningunni að maður megi ekki segja það. Maður gæti verið stimplaður þjóðernissinni, orð sem fólk hefur ólíkan skilning á en yfirleitt neikvæðan, eða þá væminn.

Heilög Francisca

"Góðan daginn, Tumi minn,“ segir brosmildasta og skemmtilegasta afgreiðslukona heimsins þegar ég legg leið mína í Bónus úti á Granda.

Við sigruðum þá…næstum því

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir kollegum sínum frá Sviss í undankeppni heimsmeistaramótsins í Bern í kvöld. Sem fyrr mun stór hluti þjóðarinnar setjast við skjáinn með litlar opinberar væntingar en hjartað fullt af draumum.

Hvers virði eru launin?

Eru launin ekki miklu lægri?“ er spurning sem ég fæ reglulega frá fólki þegar það heyrir að ég hafi sagt upp starfi mínu sem byggingaverkfræðingur og sinni nú íþróttafréttamennsku.

Viltu kaffi?

Tiltölulega nýlega fór þeim skiptum sem starfsmenn ÁTVR spurðu mig um skilríki að fækka. Allan þrítugsaldurinn, blessuð sé minning hans, var stundin jafnvandræðaleg þegar ég mætti á kassann. Verð ég spurður eða ekki? Vissara að rétta bara kortið til þess að koma í veg fyrir að þurfa að leita að ökuskírteininu til að sanna 28 ára aldur minn.






×