Innlent

Hanna Birna mætir í Mína skoðun

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mætir í Mína skoðun á sunnudag klukkan eitt. Þátturinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi.is og í opinni dagskrá á Stöð 2.

Hanna Birna svarar stóru spurningunum en Mikael Torfason lofar líflegum en málefnalegum þætti.

Sérfræðingar þáttarins verða að þessu sinni þau Katrín Júlíusdóttir, Höskuldur Þórhallsson og Róbert Marshall. Þingmennirnir fara yfir fréttir vikunnar ásamt Mikael. Þá verður Kafbáturinn á sínum stað sem og Virkur í athugasemdum.

Mín skoðun er sem fyrr segir í opinni dagskrá á Stöð 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×