Sport

Upphitun fyrir UFC 174: Seinni hluti

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Johnson (til vinstri) og Bagautinov berjast um titilinn í nótt.
Johnson (til vinstri) og Bagautinov berjast um titilinn í nótt. Vísir/Getty
Í kvöld fer UFC 174 fram í Vancouver í Kanada. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir  Demetrious Johnson  og  Ali Bagautinov  í titilbardaga í fluguvigtinni. Fimm bardagar verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsendingin kl 2. Í þessum seinni hluta upphitunarinnar kíkjum við á tvo síðustu bardaga kvöldsins.

Demetrious Johnson (19-2-1) gegn Ali Bagautinov (13-2-0) - titilbardagi í fluguvigt (57 kg)



Meistarinn Demetrious Johnson hefur stimplað sig inn sem einn sá allra besti í heiminum, pund fyrir pund, og virðist stöðugt vera að bæta sig. Margir meistarar staðna og verða varkárari þegar á toppinn er komið en Johnson er búinn að klára síðustu tvo bardaga sína og sýnt miklar framfarir. Það gerir hann að einum allra besta bardagamanni heims og er hreint út sagt frábær á öllum vígstöðum bardagans.

3 atriði til að hafa í huga

  • Einn sá besti í að flétta högg og fellur saman
  • Er með ótrúlega góða fótavinnu
  • Er sennilega hraðasti bardagamaðurinn í UFC
Ali Bagautinov kemur frá hinu magnaða bardagahéraði Dagestan í Rússlandi en býr og æfir í Bandaríkjunum. Eins og svo margir bardagamenn frá Austur-Evrópu er hann með bakgrunn í sambó og er með langa afreksskrá frá hinum ýmsu glímumótum í Rússlandi. Hann þótti framúrskarandi glímumaður í heimalandinu en eftir að faðir hans féll frá þurfti hann að hætta að glíma og einbeita sér að því að vinna og sjá þannig fyrir stórfjölskyldunni. Nokkrum árum seinna byrjaði hann í MMA og er nú kominn alla leið í titilbardaga í UFC.

3 atriði til að hafa í huga

  • Ætti að nota lágspörk til að reyna að hægja á meistaranum hraða
  • Er með hættulega beina hægri og upphögg
  • Hefur sýnt þreytumerki þegar líður á bardagann á meðan Johnson gefur í þegar líða tekur á bardagann
Tyron Woodley (13-2-0) gegn Rory MacDonald (16-2-0) - veltivigt (77 kg)

Þessi bardagi er gríðarlega mikilvægur í veltivigtinni þar sem hér mætast tveir bardagamenn sem eru nr. 2 og 3 á styrkleikalista UFC í þyngdarflokkinum. Tyron Woodley er frábær glímumaður en hefur einnig sýnt gríðarlegan höggþunga. Hann er fyrrum Strikeforce meistarinn og virðist vera að toppa núna. Eftir sannfærandi sigra á Jay Hieron (rothögg), Josh Koscheck (rothögg) og Carlos Condit (tæknilegt rothögg) er hann sennilega einum sigri frá titilbardaga.

3 atriði til að hafa í huga

  • Hlaut tvisvar „All-American nafnbótina (á topp 8 á landsvísu) í bandarísku háskólaglímunni
  • Þarf að flétta högg og fellur vel saman gegn MacDonald
  • Með mjög þunga beina hægri
Rory MacDonald æfir hjá Tristar í Kanada og var lengi vel einn af aðal æfingafélögum fyrrum veltivigtarkóngsins Georges St. Pierre. Honum hefur lengi verið spáð miklum frama í íþróttinni en hann hefur barist sem atvinnumaður frá 16 ára aldri. Hann kemur alltaf til leiks með góða leikáætlun og verður gaman að sjá hvernig hann ætlar að sigra höggþunga glímumanninn Woodley.

3 atriði til að hafa í huga

  • Er með mjög góða stungu
  • Á það til að dala mikið í 3. lotu
  • Á erfiðleikum með andstæðinga sem pressa hann stíft
Vísir og MMA Fréttir starfa saman í umfjöllun um MMA. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér. 

MMA

Tengdar fréttir

Upphitun fyrir UFC 174: Fyrri hluti

Á laugardagskvöldið fer UFC 174 fram í Vancouver í Kanada. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Demetrious Johnson og Ali Bagautinov í titilbardaga í fluguvigtinni en fimm bardagar verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×