Innlent

María Lilja þótti tvísaga: „Þrátt fyrir að gerandi hafi allt að því játað brot sitt“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
María Lilja Þrastardóttir
María Lilja Þrastardóttir
„Málið mitt var látið niður falla vegna ónógra sannana, þrátt fyrir að gerandi hafi allt að því játað brot sitt og framburður vitna þótti styðja framburð minn,” segir María Lilja Þrastardóttir, fjölmiðlakona, á Facebook í dag. Þar vísar hún í atvik sem átti sér stað fyrir nokkrum árum, en María Lilja kærði þá mann fyrir nauðgun.

Í samtali við blaðamann segir hún eina af ástæðum þess að máli hennar var vísað frá, og var tíundað í rökstuðningi saksóknara, að hún þótti tvísaga.  „Þegar á mér var brotið kynferðislega var ég klædd í síðan náttkjól. Hann bar við ökkla að aftan og var við sköflung að framan. Ég sagði ökklasíður í skýrslutöku.”

Á mynd hér að neðan má sjá brot úr skýrslu kynferðisbrotadeildar.

Úr skýrslu Maríu Lilju
„Mig langaði að birta þetta litla dæmi úr rökstuðningi saksóknara til að varpa skýru ljósi á hvað þolendur þurfa að upplifa ákveði þau að kæra," útskýrir María Lilja, og segir það ekki beint valdeflandi að finna hvernig farið er með mál af þessu tagi hér á landi.

Sjá einnig: Átján prósent tilkynntra nauðgana enduðu fyrir dómi

„Ég skil vel að fólk veigri sér við því að kæra. Ég er búin að vera mjög hugsi yfir þessu vegna nýfallinna sýknudóma, frávísana og svo dóma sem féllu hvar þolendur voru karlmenn. En annað þeirra mála er virðist mjög líkt mínu máli.“

Hún segir að fyrst og fremst þurfi að breyta viðhorfi lögreglu og yfirvalda til kvenna og kynfrelsi þeirra. „Fólk sem les þetta yfir trúir ekki að þetta skuli vera raunveruleikinn. En svona er þetta. við búum við ömurlegt kerfi sem gerir nauðgurum auðvelt fyrir en þolendur sitja eftir með sárt ennið. Auðvitað er ekkert eðlilegt að sídd náttkjólsins sem þér var nauðgað í sé eitthvað atriði. Það á ekki að skipta neinu máli hverju þú klæðist. Í mínu tilfelli gerði það þó.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×