Íslenski boltinn

Jeppe til Keflavíkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jeppe leikur með Keflavík næstu tvö árin.
Jeppe leikur með Keflavík næstu tvö árin. mynd/keflavík
Keflvíkingar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Inkassodeildinni næsta sumar en danski framherjinn hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Jeppe kom upphaflega hingað til lands árið 2014 þegar hann gekk í raðir Stjörnunnar. Jeppe skoraði sex mörk í níu deildarleikjum fyrir Garðbæinga sumarið 2014.

Hann sneri aftur til Stjörnunnar 2015 og skoraði þá átta mörk í 21 deildarleik.

Jeppe lék með Stjörnunni fyrra hluta síðasta tímabils en var lánaður til KR í júlí. Daninn skoraði samtals þrjú mörk í 17 deildarleikjum á síðasta tímabili.

Keflavík endaði í 3. sæti Inkassodeildarinnar í sumar og mistókst að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni.

Eftir tímabilið var Guðlaugur Baldursson ráðinn þjálfari liðsins í stað Þorvaldar Örlygssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×