Innlent

Kviknaði aftur í Agli eftir að komið var til hafnar

Gissur Sigurðsson skrifar
Báturinn er nokkuð illa farinn eftir eldinn.
Báturinn er nokkuð illa farinn eftir eldinn. Mynd/Helgi Ragnarsson
Hætta skapaðist þegar eldur kviknaði í ljósavélarrými dragnótabátsins Egils ÍS klukkan hálf ellefu í gærkvöldi, þegar hann var staddur um fimm sjómílur út af mynni Dýrafjarðar.

Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og kallaði stjórnstöð gæslunnar þegar til nálægra skipa og báta um að halda á vettvang og veita aðstoð ef á þyrfti að halda. Þá voru sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar virkjaðar, sem sendu út björgunarbáta og skip.

Nokkru síðar bárust þær upplýsingar frá bátnum, að fjögurra manna áhöfnin væri búin að loka vélarrýmið af og freistuðu þess að kæfa eldinn. Þá var búið að senda slökkviliðsmenn með fiskibáti frá Ísafirði og fóru þeir um borð.

Auk þess var þyrla gæslunnar send vestur með þrjá slökkvililðsmenn frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en þegar ljóst var að slökkviliðsmenn væru komnir um borð var þyrlunni beint til Þingeyrar þar sem hún beið , ef á aðsotð þyrfti að halda.

Skipverjum tókst að sigla Agli til hafnar á þingeyri fyrir eigin vélarafli, þangað sem komið var laust upp úr klukkan eitt í nótt. Hálftíma síðar var talið að endanlega væri búið að slökkva eldinn og héldu slökkviliðsmenn þá til síns heima og þyrlan fór aftur til Reykjavíkur.

En á sjötta tímanum í morgun gaus hann aftur upp og voru slökkviliðsmenn frá Ísafirði sendir á vettvang, en fréttastofu er ekki kunnugt um hvort eldurinn núna logaði á sama stað og í nótt. Ekki er vitað hvað olli íkveikjunni í gærkvöldi, en Egill er 70 brúttótonna stálskip.

Engan skipverja sakaði í baráttunni við eldinn í gærkvöldi og í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×