Innlent

Vara við uppköstum og niðurgangi um jólin

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það þarf að huga að gæludýrunum yfir hátíðarnar.
Það þarf að huga að gæludýrunum yfir hátíðarnar. Vísir/Getty
Matvælastofnun varar við því að jólin geti endað í „niðurgangi og uppköstum sem hvorki er eiganda né dýri til ánægju,“ ef slysast er til að gefa gæludýrum af hátíðarmatnum. Oftast sé ekki um annað að ræða en misskilda góðmennsku þó að mörg dýr, ekki síst hundar, séu viðkvæm fyrir breytingum í matarræði.

Í pistli á vef stofunarinnar er farið yfir nokkra hluti sem sérstaklega ber að varast í þessum efnum um hátíðarnar.

Súkkulaði inniheldur til að mynda efni theobromíð sem er eitrað hundum og hefur slæm áhrif á ketti. Mest er af theobrómíð í dökku súkkulaði. Theobrómíð hefur áhrif á hjarta, taugakerfi og nýru sem getur valdið alvarlegri eitrun, jafnvel dauða. Áhrifin byrja oft 4-24 klst eftir inntöku og geta verið uppköst, niðurgangur, óróleiki, ofvirkni, skjálfti, óstöðugleiki og krampi. Ekkert mótefni er til. Því þarf að fara með dýrið til dýralæknis sem fyrst.

„Ef um 30 kg hund er að ræða gæti verið um lífshættulega eitrun ef hann étur yfir 1 kg af mjólkursúkkulaði, ½ kg af dökku súkkulaði og 170 g af suðusúkkulaði. Eituráhrif myndu koma fram við lægri skamt td líklegt að uppköst og niðurgangur sæist við inntöku af 200 g af mjólkursúkkulaði, möguleg áhrif á hjartað við 500 g og trúlega skjálftar og krampar við 750 g,“ segir í pistli Matvælastofnunar.

Stofnunin varar jafnframt við því að gefa gæludýrum lauk, hvítlauk, graslauk, rúsínur, ber, avocado, bein, heslihnetur, gerdeig og gervisætuefnið Xylitol. Allar þessar vörur geta haft slæm áhrif á dýrin, hver með sínum hætti, eins og fræðast má um í pistlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×