Logi spilar síðustu landsleikina sína í Höllinni á föstudag og sunnudag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2018 14:30 Logi Gunnarsson fagnar hér líklega sinni frægustu körfu á landsliðsferlinum en hann tryggði íslenska landsliðinu þá framlengingu á móti Tyrkjum. Vísir/Valli
Logi Gunnarsson hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir leikina í undankeppni HM í körfubolta í þessari viku. Logi staðfestir þetta við Vísi. Leikirnir við Finnland og Tékkland í Laugardalshöllinni verða landsleikir númer 146 og 147 á ferlinum en hann er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. „Ég mun leggja landsliðsskóna á hilluna núna eftir þessa tvo leiki í vikunni. Ég hef verið í liðinu í næstum átján ár samfleytt og alltaf gefið kost á mér þó svo það hafi stundum ekki farið vel í félagsliðin mín þegar ég var erlendis. Þetta er orðinn langur tími og ég sáttur við að klára tvo leiki á heimavelli,“ sagði Logi við Vísi. Logi lék sinn fyrsta landsleik á móti Noregi 1. ágúst 2000. Landsliðsferill hans telur því átján og hálft ár og leiki á móti 43 mismundandi þjóðum. Logi hefur skorað 1.473 stig í 145 landsleikjum eða 10,2 stig að meðaltali í leik. Logi hefur skorað 209 þriggja stiga körfur fyrir íslenska landsliðið og er einn af þremur meðlimum í 200 þrista klúbbnum með þeim Teiti Örlygssyni og Guðjóni Skúlasyni. Logi hefur líka leikið 26 landsleiki í Laugardalshöllinni eða fleiri en nokkur annar íslenskur körfuboltamaður.
Körfubolti Mest lesið Luke Littler grét eftir leik Sport Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Körfubolti Fleiri fréttir Martin og félagar burstuðu botnslaginn Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Versta frumraun í úrvalsdeild? Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki „Sást frekar bersýnilega að það er ekki mikið sjálfstraust í liðinu“ „Valsararnir voru bara betri“ „Við þurfum að girða okkur í jólafríinu“ Enn eitt tapið og Martin í minna hlutverki en vanalega Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti „Fyrirgefðu að ég var ekki pabbinn sem þú vildir að ég værir“ Körfuboltakvöld í beinni frá Minigarðinum „Nánast afsökuðu meðdómara sinn“ „Setjið stóra mynd af honum á skjáinn og leyfið fólki að horfa“ „Spiluðum glimrandi vel í sókn“ Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 105-86 | Keflavík fór illa með Jordan-lausa Þórsara „Við þurfum bara að finna lausnir og bæta okkar leik“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 90-100 | Hilmar Smári í ham Uppgjörið: Álftanes - Höttur 89-92 | Ótrúleg endurkoma hjá Hetti „Leikurinn þróaðist eins og við hefðum viljað að hann þróist“ Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum Thelma og Tryggvi best í fyrsta sinn Hornets gaf dreng PlayStation 5 en tók gjöfina síðan til baka Pippen stríddi dómurunum á NBA leik Ho You Fat vill spila áfram á Íslandi: „Ég er að skoða hvað er í boði“ Þorleifur: Þetta er ákveðin skita Uppgjörið: ÍR - Haukar 93-96 | Haukar enduðu sigurgöngu ÍR Haukamaðurinn Ho You Fat í tveggja leikja bann Uppgjör og viðtöl: Valur - Grindavík 69-67 | Valssigur í háspennuleik KR sótti Gigliotti Sjá meira
Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum