Uppistandarinn Jakob Birgisson mun fylla í skarð grínistans Björns Braga Arnarssonar á Herrakvöldi Knattspyrnudeildar Vals sem haldið verður annað kvöld. Lárus Bl. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vals, segir í samtali við Vísi að það hafi verið sameiginleg ákvörðun skipuleggjenda kvöldsins og Björns Braga að hann myndi ekki skemmta gestum á viðburðinum.
Mál Björns Braga hefur vakið mikla athygli í vikunni eftir að sjö sekúndna myndband rataði í dreifingu þar sem hann sást áreita sautján ára stúlku á Akureyri um liðna helgi.
Síðan þá hefur Björn Bragi beðist afsökunar og sagst bera fulla ábyrgð. Hann hefur stigið til hliðar sem spyrill spurningakeppni framhaldsskólanema Gettu betur.
Greint var frá því fyrr í vikunni að Íslandsbanki og Ergo fjármögnun hefðu ákveðið að hætta við að bjóða upp á uppistand með Birni Braga sem hann átti að flytja fyrir starfsmenn fyrirtækjanna í lok næsta mánaðar. Nú bætist skemmtun Valsmanna við.
Uppistandarinn Jakob Birgisson skemmta gestum á herrakvöldi Vals. Hann skaust í sviðsljósið um liðna helgi eftir að félagi Björns Braga úr uppistandshópnum Mið-Íslandi, Ari Eldjárn, sagðist aldrei hafa séð jafn efnilegan grínista eftir uppistand Jakobs á veitingastaðnum Hard Rock.
Mynd af Birni Braga var á auglýsingu fyrir Herrakvöld Vals þar sem hann var kynntur sem eitt af atriðum kvöldsins ásamt söngvaranum Agli Ólafssyni, fyrrverandi ráðherranum Guðna Ágústsyni og formanni Körfuknattleiksdeildar Vals, Svala Björgvinssyni.
Í gær var ný mynd sett inn fyrir viðburðinn þar sem Jakob var kominn í stað Björns Braga.
Björn Bragi mun ekki skemmta Valsmönnum
Tengdar fréttir
Stór spurning sem erfitt er að svara
Óhætt er að segja að sjö sekúndna myndband sem fór í afar mikla dreifingu í netheimum á mánudagskvöld hafi dregið dilk á eftir sér.
Stúlkan tekur afsökunarbeiðni Björns Braga góða og gilda
Í yfirlýsingu segir stúlka sem Björn Bragi viðurkennir að hafa káfað á að í umfjöllun um atvikið hafi verið reynt að gera eitthvað úr því sem hún upplifði ekki.
Uppistand Björns Braga hjá Íslandsbanka blásið af
Verkefnastaða skemmtikraftsins Björns Braga í uppnámi eftir að hann áreitti 17 ára gamla stúlku kynferðislega.