Fyrsta tap Tottenham á nýja heimavellinum staðreynd

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað
Sigurmarkinu fagnað vísir/getty
Tottenham fékk West Ham í heimsókn í Lundúnarslag í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en Tottenham hefði getað farið langt með tryggja sér keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð með sigri á West Ham í dag.

Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var ekkert að hvíla lykilmenn þó framundan sé leikur gegn Ajax í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í miðri viku en þrátt fyrir það var lítið að frétta í sóknarleik Spurs.

Leikurinn var markalaus allt þar til á 67.mínútu þegar Michail Antonio skoraði eftir stoðsendingu frá Marko Arnautovic.

Fleiri urðu mörkin ekki og fyrsta tap Tottenham á nýjum heimavelli staðreynd. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira