Rafíþróttir

Sex viðureignir í Lenovo deildinni

Samúel Karl Ólason skrifar
Sex viðureignir í Lenovo deildinni fara fram í dag. Keppt verður í leiknum League Of Legends og hefjast leikar klukkan sex. Fyrst mætast Dusty LoL og KR Lol en liðin Fram og Team Winners Table keppast einnig við klukkan sex.

Klukkan sjö spila Dusty LoL, sem eru efstir í deildinni, gegn TeamGZero.

Klukkan átta eru einnig tveir leikir. Þá verður viðureign KR LoL og Team Winners Table og auk þess eigast TeamGZero og Fram við.

FH eSports Lol og Dusty Lol keppa svo klukkan níu.

Hægt er að fylgjast með viðureignunum hér að neðan.

Hægt er að fylgjast með leikjunum hér að neðan. Þá má sjá stöðuna í CS:GO deildinni hér og LOL deildinni hér.

Watch live video from rafithrottir on www.twitch.tv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×