Innlent

Katrín við CNN: Ísland að ná tökum á veirunni

Kjartan Kjartansson skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar vegna breytinga á ferðatakmörkunum í dag.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar vegna breytinga á ferðatakmörkunum í dag. Vísir/Vilhelm

Íslendingar eru að ná tökum á kórónuveirunni en eru meðvitaðir um að bakslag gæti komið síðar. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í viðtali við bandarísku fréttastöðina CNN í dag. Góðan árangur Íslands mætti meðal annars rekja til þess að stjórnvöld hefðu hlustað á sérfræðinga sína og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Ríkisstjórnin kynnti í dag áform um að slaka á ferðatakmörkunum til landsins í júní. Þá er stefnt að því að ferðamenn sem koma til landsins verði skimaðir fyrir veirunni á Keflavíkurflugvelli þannig að þeir þurfi ekki að fara í tveggja vikna sóttkví reynist sýni neikvætt.

Katrín var gestur Christiane Amanpour, þáttastjórnanda CNN, í tilefni af þessu í dag. Lofaði Amanpour góðan árangur Íslands gegn veirunni og spurði forsætisráðherra hver staðan á faraldrinum væri nú.

„Við erum hægt og rólega að ná stjórninni en við erum augljóslega meðvituð um að það gæti komið bakslag, að þetta gæti komið upp aftur,“ sagði Katrín og vísaði til þess að ekkert nýtt smit hefði nú greinst fimm daga í röð.

Amanpour spurði Katrínu hvers vegna byrjað hefði verið að skima fyrir kórónuveirunni þegar í lok janúar þrátt fyrir að fyrsta smitið hefði ekki greinst á Íslandi fyrr en um mánuði síðar. Katrín sagði að vitað hafi verið að veiran væri á leiðinni og því hafi undirbúningur verið hafinn í janúar. Náið samstarf hafi átt sér staða á milli stjórnvalda, lýðheilsuyfirvalda og Íslenskrar erfðagreiningar um fjöldaskimanir, bæði á fólki með og án einkenna.

„Við höfum reynt mætt veirunni með rannsóknum, með því að reiða okkur á vísindamennina okkar, heilbrigðissérfræðinga og lækna og læra meira og meira um veiruna og hvernig við getum barist gegn henni,“ sagði forsætisráðherra.

Bar Amanpour viðbrögð stjórnmálamanna og almennings í Bandaríkjunum saman við það sem hefði gerst á Íslandi. Í Bandaríkjunum stæði yfir hatrammar deilur um viðbrögð við faraldrinum en á Íslandi hafi almenningur almennt hlýtt tilmælum stjórnvalda.

Vísaði Katrín til þess að stjórnvöld hefðu tekið ákvörðun um að hlusta á vísindamenn og fylgja ráðum þeirra. Þá hafi verið reynt að hafa ferlið eins gegnsætt og mögulegt var með reglulegum upplýsingafundum með sérfræðingum sem gátu svarað mörgum spurningum fólks.

Ísland hefði grætt á því að vera lítil þjóð þegar kom að rakningu smita en hún hafi þó kostað mikla vinnu. Boðaði Katrín að áfram yrði haldið með skimun, rakningu og félagsforðun á Íslandi.

„Það sem við höfum gert er að fylgja ráðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, nýta okkur að við erum lítil eyja með tiltölulega fátt fólk þannig að þetta er viðráðanlegt verkefni, að minnsta kosti hér á Íslandi,“ sagði Katrín.


Tengdar fréttir

Stórt en varfærið skref segir Katrín

Katrín Jakobsdóttir segir að þau skref sem kynnt voru á blaðamannafundi í dag sem miða að því létta á ferðatakmörkunum til og frá landinu séu stór en á sama tíma varfærin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×