Sport

Dag­skráin í dag: Man. United í Evrópu­deildinni og átta aðrar beinar út­sendingar

Anton Ingi Leifsson skrifar
United er í beinni í kvöld. Þeir mæta Real Sociedad í hörkuleik á Spáni.
United er í beinni í kvöld. Þeir mæta Real Sociedad í hörkuleik á Spáni. EPA-EFE/Laurence Griffiths

Níu beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í dag. Manchester United mætir til leiks í Evrópudeildinni og svo margt, margt fleira.

Fyrsta útsending dagsins er klukkan 17.00 er Domino’s Körfuboltakvöld kvenna gerir upp fyrstu umferðina eftir landsleikjahlé sem fór fram í gær.

Manchester United mætir til leiks í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar er þeir mæta Real Sociedad á Spáni. Flautað verður til leiks klukkan 17.55.

Á sama tíma mæta lærisveinar Joses Mourinho austurríska liðinu Wolfsberger AC en leikurinn er einnig liður í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Arsenal mætir Benfica síðar í kvöld og þá verður einnig sýnt frá leik Antwerp og Rangers, lærisveinum Stevens Gerrard.

Grótta og Fram mætast í Olís deild karla en allar beinar útsendingar dagsins sem og næstu daga má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×