Fótbolti

Þjóðverjar standa enn á ný í vegi fyrir meistaradraumum Englendinga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raheem Sterling var rúmlega eins árs þegar þjálfari hans, Gareth Southgate, klúðraði vítinu fræga gegn Þýskalandi á EM 1996 og Jack Grealish var bara tíu mánaða.
Raheem Sterling var rúmlega eins árs þegar þjálfari hans, Gareth Southgate, klúðraði vítinu fræga gegn Þýskalandi á EM 1996 og Jack Grealish var bara tíu mánaða. Getty/Chris Brunskill

Lokadagur sextán liða úrslita Evrópumótsins er í dag og eftir hann standa bara átta þjóðir eftir sem geta unnið Evrópumeistaratitilinn.

Englendingar unnu Vestur Þjóðverja í úrslitaleik þegar þeir unnu sitt eina stórmót fyrir 55 árum en síðan hafa mörg af mest lofandi meistaraliðum þeirra ensku endað stórmótin á súru tapi á móti Þjóðverjum.



Leiðir Englendinga og Þjóðverja liggja enn á ný saman í dag þegar þjóðirnar mætast í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu.

Síðustu tveir leikir sextán liða úrslitanna eru í dag og þá kemur í ljós hverjir mætast í síðasta leik átta liða úrslitanna.

Sigurvegarinn úr leik Englands og Þýskalands (klukkan 16.00) mætir sigurvegaranum úr leik Svíþjóðar og Úkraínu sem er seinni leikur kvöldsins og hefst klukkan 19.00. Leikur Englendinga og Þjóðverja er spilaður á Wembley en leikur Svía og Úkraínumanna fer fram í Glasgow.

Það var einmitt á Wembley sem Englendingar tryggðu sér heimsmeistaratitilinn sumarið 1966 eftir 4-2 sigur á Þjóðverjum í framlengingu þar sem enn er verið að rífast um þriðja mark enska liðsins þar sem skot Geoff Hurst fór í slána og niður á línuna. Dómarinn dæmdi mark en það hefur aldrei verið sannað eða afsannað með myndum, þó tilraunir hafi verið gerðar til þess.

Þjóðverjar hafa síðan haft betur í útsláttarleikjum sínum á móti Englandi á stórmótum og eru fyrir löngu búnir að hefna fyrir tapið á Wembley í júlí 1966.

Þýskaland sló England út úr átta liða úrslitunum á HM 1970, út úr undanúrslitum á HM 1990, út úr undanúrslitum á EM 1996 og loks út úr átta liða úrslitum á HM 2010. Í þessum síðasta leik 2010 þá skoraði Frank Lampard mark sem var ekki dæmt gilt en dómarar leiksins misstu af því þegar skot hans fór af slánni og inn fyrir marklínuna. Nú var heppnin ekki með þeim ensku en markið átti mikinn þátt í að tekin var upp marklínutækni í fótboltanum.

Grátlegustu töp Englendinga á móti Þjóðverjum voru þó örugglega þessi tvö í undanúrslitunum á HM og EM á tíunda áratugnum þar sem úrslitin réðust í bæði skiptin í vítakeppni.

Fyrri leikurinn var í undanúrslitum á HM á Ítalíu og fór fram í Torino. Þjóðverjar komust yfir með marki Andreas Brehme en Gary Lineker jafnaði. Í vítakeppninni skoruðu Þjóðverjar úr öllum fjórum spyrnum sínum en Stuart Pearce og Chris Waddle klikkuðu á síðustu tveimur vítaspyrnum enska liðsins.

Sex árum síðar lágu leiðir þeirra aftur saman í undanúrslitum en nú á EM og á sjálfum Wembley leikvanginum. Nú kom Alan Shearer Englendingum yfir í upphafi leiks en Stefan Kuntz jafnaði þrettán mínútum síðar. Aftur enduðu leikar 1-1 og aftur þurfti vítaspyrnukeppni til að fá sigurvegarann.

Úrslitin réðust í bráðabana. Gareth Southgate, núverandi landsliðsþjálfari Englendinga, klikkaði á sjötta víti enska liðsins og Andreas Möller skaut þýska liðið í úrslitaleikinn. Þjóðverjar voru þá búnir að skora úr tíu vítaspyrnum í röð á móti enska liðinu í vítakeppnum á stórmóti.

Það er kannski ekkert skrýtið að Englendingar töluðu um að fótbolti væri einfaldur leikur. 22 leikmenn elta bolta í 90 mínútur og Þjóðverjar fagna sigri.

Svíar mæta Úkraínu í seinni leik dagsins en Svíar unnu sinn riðil á sama tíma og Úkraína var síðasta liðið úr þriðja sæti sem komst inn í sextán liða úrslitin. Það nægði Úkraínumönnum að vinna bara Norður Makedóníu í riðlinum.

Andriy Shevchenko, þjálfari Úkraínu, á góðar minningar frá leik við Svía en hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri þegar þjóðirnar mættust á EM 2012. Þetta er fyrsti leikur þjóðanna síðan þá.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×