Erlent

Telja Úkraínumenn geta haldið aftur af Rússum við Kænugarð

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir hermenn og flóttafólk á ferðinni nærri Kænugarði.
Úkraínskir hermenn og flóttafólk á ferðinni nærri Kænugarði. AP/Efrem Lukatsky

Þó þeir hafi sótt lítillega fram í dag er sókn Rússa að Kænugarði talin vera strand, ef svo má að orði komast. Hugveitan Institute for the Study of War segir auknar líkur á því að Úkraínumenn geti varist sókn Rússa að höfuðborginni, áður en þeim tekst að umkringja hana.

Þrátt fyrir að rússneski herinn hafi varið nokkrum dögum í endurskipulagningu og birgðadreifingu norður af Kænugarði, stöðvuðu Úkraínumenn sóknir þeirra á síðustu dögum og segir ISW það til marks um að raunveruleg geta heraflans á svæðinu sé minni en fjöldi hermanna gefi í skyn.

Þá eru Úkraínumenn sagðir hafa valdið rússneskri skriðdreka-herdeild miklum skaða austur af Kænugarði í dag.

Hér má sjá myndefni frá Radio Free Europe sem á að hafa verið tekið eftir að Úkraínumenn sigruðu herdeildina sem nefnd er hér að ofan.

Svipaða sögu er að segja af sóknum Rússa að Tsjernihív og Súmí, samkvæmt ISW, og gengur þeim lítið að sækja fram þar.

Rússum hefur heldur ekki tekist að sækja fram hjá Míkolaív í suðurhluta-Úkraínu og ná fótfestu á vesturbakka árinnar sem borgin stendur við.

ISW telur þó að Rússar geti gert öflugar sóknir í Suður- og Austur-Úkraínu á komandi dögum en óljóst sé hvort það geti skilað miklum árangri, sé mið tekið af frammistöðu rússneska hersins hingað til.

Ennfremur segir í greiningu hugveitunnar að flugher og loftvarnir Úkraínumanna hafi komið verulega niður á fremstu sveitum Rússa. Flugher Rússland geti ekki stutt þær og því séu þær viðkvæmar gagnvart loftárásum og stórskotaliðsárásum Úkraínumanna.

Embættismenn í Bandaríkjunum sögðu blaðamönnum í kvöld að enn sem komið er hefðu Rússar ekki gert tilraunir til að stöðva vopnasendingar til Úkraínumanna. Þær eru margar og virðist hafa fjölgað. Ekki er búist við því að Rússar láti þær sig engu varða til lengdar.

Sjá enga lausn

Þá segjast embættismenn beggja vegna við Atlantshafið ekki sjá fyrir endann á átökunum í Úkraínu. Þetta sögðu þeir í samtali við Washington Post og eru langvarandi átök talin það líklegasta í stöðunni.

Þeim munu fylgja tilheyrandi eyðilegging og dauðsföll en Rússar sitja nú um nokkrar borgir Úkraínu og eru sagðir gera linnulausar loft- og stórskotaliðsárásir á þær.

Hér að neðan má sjá annað myndband sem Radio Free Europe birti í kvöld. Það sýnir úkraínska hermenn gera gagnárás gegn Rússum norður af Kænugarði.


Tengdar fréttir

Mar­tröð í Mariu­pol: Föllnum hrúgað í fjölda­gröf milli sprengju­á­rása

Íbúar í Mariupol í Úkraínu eru að niðurlotum komnir vegna stöðugra loftárása og skorts á öllum helstu lífsnauðsynjum. Á milli loftárása reynir fólk að ná sér í vatn úr brunnum og koma hinum látnu fyrir í fjöldagröfum. Engin handbær niðurstaða varð á fundi utanríkisráðherra Úkraínu og Rússlands í dag.

Rauði krossinn sendir 70 milljónir til mannúðaraðgerða í Úkraínu og nágrannaríkjum

Rauði krossinn á Íslandi tilkynnti Alþjóða Rauða krossinum í gær um 70 milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Úkraínu vegna átakanna þar í landi og til aðstoðar flóttafólki í nágrannaríkjum. Framlagið er afrakstur neyðarsöfnunar Rauða krossins þar sem nú hafa tæplega 40 milljónir króna safnast auk 30 milljóna króna framlags frá utanríkisráðuneytinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×