Öruggur sigur tryggði United sæti í útsláttarkeppninni

Cristiano Ronaldo skoraði þriðja mark United í kvöld.
Cristiano Ronaldo skoraði þriðja mark United í kvöld. Naomi Baker/Getty Images

Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti FC Sheriff í Evrópudeildinni í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn þýðir að liðið er öruggt með sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og mætir Real Sociedad í hreinum úrslitaleik um efsta sæti E-riðils.

Diogo Dalot kom liðinu yfir á 44. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Christian Eriksen og staðan var því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Það var svo varamaðurinn Marcus Rashford sem tvöfaldaði forystu liðsins með marki á 65. mínútu áður en Cristiano Ronaldo gerði endanlega út um leikinn tæpum tíu mínútum fyrir leikslok.

Niðurstaðan því öruggur 3-0 sigur United og liðið er með 12 stig í öðru sæti E-riðils þegar ein umferð er eftir. United er þremur stigum á eftir toppliði Real Sociedad, en liðin mætast í lokaumferðinni að viku liðinni í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins.

Þá vann Roma einnig lífsnauðsynlegan 1-2 útisigur er liðið heimsótti HJK Helsinki á sama tíma. Roma situr nú í þriðja sæti C-riðils með sjö stig, líkt og Ludogorets Razgrad, en liðin mætast í lokaumferðinni í úrslitaleik um sæti í útsláttarkeppninni.

Úrslit kvöldsins

C-riðill

HJK Helsinki 1-2 Roma

E-riðill

Manchester United 3-0 FC Sheriff

Omonia Nicosia 0-2 Real Sociedad

F-riðill

Sturm Graz 1-0 Feyenoord

G-riðill

Freiburg 1-1 Olympiacos

Nantes 2-1 Qarabag FK

H-riðill

Ferencváros 1-1 Monaco

Rauða Stjarnan 2-1 Trabzonspor

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira