Fótbolti

Saka Barcelona um að hafa notað ólöglegan leikmann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robert Lewandowski í leik Barcelona og Espanyol í spænsku deildina um helgina.
Robert Lewandowski í leik Barcelona og Espanyol í spænsku deildina um helgina. AP/Joan Monfort

Espanyol hefur sent inn kvörtun til spænska knattspyrnusambandsins og heldur því fram að Barcelona hafi notað ólöglegan leikmann í Katalóníuslagnum um helgina.

Málið snýr að pólska stjörnuframherjanum Robert Lewandowski sem spilaði leikinn. ESPN fjallar um viðbrögð forráðamanna Espanyol.

Lewandowski hafði verið dæmdur í þriggja leikja bann en Barcelona áfrýjaði málinu til spænsk dómstóls sem frestaði síðan banninu á föstudaginn þar til niðurstaða fæst.

Lewandowski spilaði allar níutíu mínúturnar í leiknum sem endaði með 1-1 jafntefli.

Forráðamenn Espanyol segjast hafa látið dómara leiksins, hinn umdeilda Mateu Lahoz, vita af því að Barcelona væri með ólöglegan leikmann í liði sínu.

Lewandowski var rekinn af velli eftir að hafa fengið tvö gul spjöld í leik á móti Osasuna í nóvember og fékk fyrir það eins leiks bann. Hann fékk hins vegar tvo leik til viðbótar fyrir handbendingar í átta að dómara leiksins þegar hann yfirgaf völinn.

Barcelona áfrýjaði banninu og sagði að Lewandowski hafi beint þessu að Xavi Hernandez þjálfara en ekki dómaranum. Þeirri áfrýjun var vísað frá en Börsungar fóru þá með málið fyrir almenna dómstóla við litlar vinsældir nágranna sinna.

Næsti leikur Barcelona er stórleikur á móti Atletico Madrid á sunnudaginn kemur en vita ekki enn hvort að Lewandowski verði þá byrjaður að taka út bannið sitt eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×