Fótbolti

Brighton valtaði yfir Everton og Mitrovic skaut Fulham upp að hlið Liverpool

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leicester City v Fulham FC - Premier League LEICESTER, ENGLAND - JANUARY 03: Aleksandar Mitrovic of Fulham celebrates after scoring the team's first goal during the Premier League match between Leicester City and Fulham FC at The King Power Stadium on January 03, 2023 in Leicester, England. (Photo by Clive Mason/Getty Images)
Leicester City v Fulham FC - Premier League LEICESTER, ENGLAND - JANUARY 03: Aleksandar Mitrovic of Fulham celebrates after scoring the team's first goal during the Premier League match between Leicester City and Fulham FC at The King Power Stadium on January 03, 2023 in Leicester, England. (Photo by Clive Mason/Getty Images) Clive Mason/Getty Images

Brighton vann afar öruggan 1-4 útisigur er liðið sótti Everton heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Á sama tíma vann Fulham nauman 0-1 sigur gegn Leicester.

Kaoro Mitoma kom Brighton yfir gegn Everton strax á 14. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Moises Caicedo og það reyndist eina mark fyrri hálfleiksins.

Í upphafi síðari hálfleiks opnuðust þó allar flógáttir hjá heimamönnum og gestirnir gerðu út um leikinn á sex mínútna kafla.

Evan Ferguson skoraði annað mark Brighton á 51. mínútu, Solly March breytti stöðunni í 0-3 á 54. mínútu og þremur mínútum síðar bætti Pascal Gross fjórða markinu við.

Heimamenn klóruðu þó aðeins í bakkann þegar Demarai Gray minnkaði muninn með marki af vítapunktinum í uppbótartíma og niðurstaðan því 1-4 sigur Brighton sem situr nú í áttunda sæti deildarinnar með 27 stig eftir 17 leiki. Everton situr hins vegar í 16. sæti með 15 stig, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Þá skoraði Aleksandar Mitrovic eina mark leiksins er Fulham vann góðan 0-1 útisigur gegn Leicester. Fulham situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með 28 stig eftir 18 leiki, jafn mörg og Liverpool sem hefur þó leikið einum leik minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×